Barnakórstjóranámskeið í Skálholti, ágúst 2008

Dagana 14. til 17. ágúst 2008 stóð Söngmálastjóri fyrir námskeiði í Skálholti sem ætlað var stjórnendum barnakóra. Þátttaka á námskeiðinu var mjög góð eða rúmlega 20 manns. Þórunn Björnsdóttir og Jón Stefánsson voru leiðbeinendur og mætti Þórunn með lítinn hóp af ungum söngvurum úr Kór Kársnesskóla og Jón með 12 stúlkur úr Graduale nobili. Þau Þórunn og Jón gáfu þátttakendur á námskeiðinu innsýn í sínar árangursríku þjálfunaraferðir með því að stýra úrvalssöngvurum úr sínum barna- og unglingakórum og taka jafnframt hina fullorðnu þátttakendur með í skapandi kennslu.  Einnig kynntu þau nýtt efni sem ávallt er þörf á, ekki hvað síst á haustin við upphaf vetrarstarfsins. Mikið var talað um hversu þarft þetta framtak væri, ekki hvað síst til að fá hugmyndir og innblástur fyrir veturinn.
Árangur þátttakenda kom síðan vel í ljós í messu í Skálholtskirkju þ. 17. ágúst, þegar allir þátttakendur stjórnuðu stúlkunum úr Graduale Nobili af mikilli röggsemi. Síðast en ekki síst voru kvöldin vel nýtt til ýmiss konar samveru, í formi fyrirlestra, skrafs, söngs og leikja.

Stefnt er að því að halda námskeið með svipuðu sniði í ágúst 2009. Nánari upplýsingar verða birtar í janúar.