Sálmafoss 2008

Svonefndur “Sálmafoss” var haldinn í fyrsta skipti á Menningarnótt ársins 2007. Þetta framtak hlaut sérlega góðar undirtektir og lítur nú út fyrir að “Sálmafossinn” sé að verða fastur hluti af dagskrá Menningarnætur þar sem viðburðurinn í ár hlaut jafnvel enn betri viðtökur. Áætlað er að nálægt 10.000 manns hafi heimsótt kirkjuna þennan dag, 23. ágúst 2008.

Sálmafossinum var hleypt af stað klukkan 15. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, sr. María Ágústsdóttir og sr. Kristján Valur Ingólfsson voru í hlutverki gestgjafa, sem kynntu dagskrána. Björn Steinar Sólbergsson sat við orgelið og leiddi almennan söng. Fjöldi kóra og organista héldu uppi dagskránni í sjö klukkutíma. Þegar dagskráin hófst með veitingu “Liljunnar” var hvert sæti Hallgrímskirkju setið auk fjölda fólks sem stóð aftast í kirkjunni. Því fylgdi mikil gleðitilfinning að sjá þrjá frumkvöðla okkar, Hauk Guðlaugsson, Martein H. Friðriksson og Jón Stefánsson taka við Liljunni (silfruðum árituðum orgelpípum) úr hendi Biskups Íslands, sem tíundaði mikilvægi tónlistarinnar og tónlistarfólks í kirkju Íslands og þakkaði þessum heiðursmönnum og þeirra samstarfsfólki fyrir ómetanlegt framlag. “Liljan” er ný viðurkenning, sem mun framvegis gefa kirkjuyfirvöldum möguleika á að sýna þakklæti sitt fyrir framúrskarandi tónlistarstarf.