Söngvahátíð barnanna í Hallgrímskirkju 8. mars
Um næstu helgi verður efnt til söngvahátíðar barnanna í Hallgrímskirkju. Sunnudaginn 8. mars klukkan 17.00 verður hægt að hlusta á afrakstur æfinga 100 barna, þegar þau flytja nýja sálma og lofsöngva frá ýmsum heimshornum. Börnin koma úr kórum Neskirkju, Langholtskirkju, Grafarvogskirkju, Hafnarfjarðarkirkju, Bústaðakirkju og Grindavíkurkirkju.
Tómas Guðni Eggertsson organisti Grindavíkurkirkju stýrir flutningi á söngvum sem undanfarin ár hafa borist til landsins með norska söngprestinum Sindre Eide, en hann hefur nokkrum sinnum heimsótt Ísland og haldið hér námskeið. Tómas Guðni hefur fengið til liðs við sig unga hljóðfæraleikara, sem stunda nám við Tónlistarskóla F.Í.H. og hafa undirbúið samspil undir handleiðslu Gunnars Hrafnssonar bassaleikara. Lögin sem flutt verða eru öll með textum sem sr. Kristján Valur Ingólfsson hefur þýtt, sum þeirra eru þegar orðin vinsæl í söngstarfi kirkjunnar. Biskup Íslands, Herra Karl Sigurbjörnsson, flytur hugvekju.
Söngvahátíð barnanna er samstarfsverkefni Listvinafélags Hallgrímskirkju og Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar. Aðgangur er ókeypis.



