2008
Dagana 14. til 17. ágúst 2008 stóð Söngmálastjóri fyrir námskeiði í Skálholti sem ætlað var stjórnendum barnakóra. Þátttaka á námskeiðinu var mjög góð eða rúmlega 20 manns. Þórunn Björnsdóttir og Jón Stefánsson voru leiðbeinendur og mætti Þórunn með lítinn hóp af ungum söngvurum úr Kór Kársnesskóla og Jón með 12 stúlkur úr Graduale nobili. Þau Þórunn og Jón gáfu þátttakendur á námskeiðinu innsýn í sínar árangursríku þjálfunaraferðir með því að stýra úrvalssöngvurum úr sínum barna- og unglingakórum og taka jafnframt hina fullorðnu þátttakendur með í skapandi kennslu. Einnig kynntu þau nýtt efni sem ávallt er þörf á, ekki hvað síst á haustin við upphaf vetrarstarfsins. Mikið var talað um hversu þarft þetta framtak væri, ekki hvað síst til að fá hugmyndir og innblástur fyrir veturinn.
Árangur þátttakenda kom síðan vel í ljós í messu í Skálholtskirkju þ. 17. ágúst, þegar allir þátttakendur stjórnuðu stúlkunum úr Graduale Nobili af mikilli röggsemi. Síðast en ekki síst voru kvöldin vel nýtt til ýmiss konar samveru, í formi fyrirlestra, skrafs, söngs og leikja.
Stefnt er að því að halda námskeið með svipuðu sniði í ágúst 2009. Nánari upplýsingar verða birtar í janúar.
Dagana 17. til 21. ágúst var haldið námskeið fyrir organista í Skálholti. Þátttakendur voru 12 talsins og komu víðsvegar að af landinu. Leiðbeinendur voru Hörður Áskelsson, Eyþór Ingi Jónsson og hinn virti kennari og organisti, Mattías Wager. Einnig nutum við góðrar aðstoðar átta félaga úr Schola Cantorum sem tóku að sér hlutverk æfingakórs. Á daginn fór fram kennsla, bæði í formi hóptíma og einkatíma en á kvöldin fengum við notið tónleika af ýmsu tagi.
Hér á eftir fer lýsing Harðar af tónleikunum:
“Mánudagskvöldið 18. ágúst hélt Mattías Wager spunatónleika í Skálholtskirkju. Þessir tónleikar verða í mínum huga ein áhrifamesta tónleikastund lífs míns. Mattías lék af fingrum fram, fyrst spuna yfir fjóra sálma úr sálmabókinni, síðan frjálsan spuna, því næst óundirbúna fantasíu yfir Liljulagið og endaði með spuna og almennum söng sálmsins Nú hverfur sól í haf. Þetta tók rúman klukkutíma. Með ótrúlegum snilldartökum á þessari listgrein, hógværð, formtilfinningu og frumleika í raddvali, tókst honum að magna upp tónseið, sem fangaði viðstadda þannig að menn máttu vart mæla í lokin. Orgelið í Skálholtskirkju skilaði litríkari hljómaheimi, en ég hefði trúað að það byggi yfir og okkur fannst sem við hefðum orðið vitni að stórviðburði.
Á þriðjudagskvöldi sungu átta félagar úr Schola cantorum fjölbreytta efnisskrá með verkum eftir Byrd, Tallis, Schütz, Nystedt, Karlsen og Þorkel Sigurbjörnsson. Þetta kórsöngvaferðalag hófst á útsetningu Smára Ólasonar á þjóðlagi við sálm Hallgríms Péturssonar, Ég byrja reisu mín, sem er gullfallegt kórlag og endaði á Kvöldbæn Hallgríms með nýlegu lagi eftir Tryggva M. Baldvinsson, sem er líka bráðfallegt. Mér fannst sérlega gaman að kynna fyrir tónleikagestum fimm fallega latneska söngva eftir Kjell Mörk Karlsen, sem ekki hafa heyrst oft áður.
Hinn tvöfaldi söngkvartett Schola cantorum þjónaði sem æfingakór í kórstjórnarkennslunni og tók þátt í lokatónleikum námskeiðsins, þar sem þátttakendur stjórnuðu og sungu, m.a. spennandi spunaverk, sem Eyþór Ingi Jónsson var búinn að undirbúa og Mattías spilaði á orgelið.”
Í bland við nokkuð stífa kennsludagskrá gátu menn einnig sungið tíðasöng, tekið þátt í málfundum, minglað, tekið í nefið og sagt sögur. Skálholt skartaði sínu fegursta alla dagana sem námskeiðin fóru fram. Þátttakendur nutu þessara daga og lýstu mikilli ánægju sinni með dvölina.
Stefna hefur verið tekin á að halda annað námskeið í ágústmánuði komandi árs. Nánari upplýsingar munu verða birtar í janúar.



