2009
BARNAKÓRSTJÓRANÁMSKEIÐ 2009
Árið 1809, fyrir 200 árum, lést Joseph Haydn.
Sama ár fæddist annað merkt tónskáld, Felix Mendelsohn Bartholdy.
Þessara sígildu meistara verður minnst bæði í verkefnaskrá og kynningum á Barnakórstjóranámskeiði í Skálholti, dagana 13. – 16. ágúst 2009.
Leiðbeinendur verða Sibyl Urbancic og Margrét Pálmadóttir.
Sibyl verður með þríradda sálma Haydns, samda í Englandi á síðasta áratug 18. aldar við enska texta (“Improved Psalmody”), á verkefnaskrá sinni. Þar að auki bænir eftir Giacinto Celsi (1905-1988), einradda við latneskan texta, og “Allelujah-Super-Round” eftir William Albright (1944-1998), svo og gregoríanska söngva.
Samhliða vinnu við þessi tónverk ætlar hún að leiðbeina þátttakendum í spuna,
sérstaklega í tengslum við kirkjulega texta.
Með þessu verkefnavali vill Sibyl benda á leiðir til að flytja kirkjusöng óháð
fjölda söngvara og raddskipan. Í kynningartíma sínum mun hún koma með dæmi kirkjulegrar tónlistar úr ýmsum
áttum fyrir sópran- og altraddir til að leyfa þátttakendum að spreyta sig á.
Margrét verður fyrirlestra sem hún kallar “Kærleikskeðjur í hug- og raunrými” en þar vinnur hún með spunnar, þekktar og óþekktar keðjur í hómó og pólýrytmum. Einnig verður hún með nýtt og spennandi efni í farteskinu til að kynna fyrir þátttakendum.
Í för með Margréti verður góður hópur söngkvenna, nokkurs konar æfingakór sem þátttakendur fá tækifæri á að stjórna.
Dagskrá námskeiðsins:
Fimmtudagur 13. ágúst
Kl. 14-16 Skráning þátttakenda
Kl. 16 Setning námskeiðs og kynning á námsgögnum
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna
Föstudagur 14. ágúst
Kl. 8 Morgunverður
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.30 Sibyl
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13-14.30 Margrét Pálma. – Kærleikskeðjur í hug- og raunrými
Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
Kl. 16 Kaffi
Kl. 16.30-18 Sibyl – Kórstjórn
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 8 Morgunverður
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.30 Sibyl
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13-14.30 Margrét Pálma. – Kærleikskeðjur í hug- og raunrými
Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
Kl. 16 Kaffi
Kl. 16,30-18 Sibyl – Kórstjórn
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 20-21.30 Kvöldvaka í umsjón Margrétar og hennar kvenna
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 9 Morgunverður
Kl. 10.30 Æfing fyrir messu þar sem barnakór og þátttakendur í námskeiðinu sjá um tónlistina
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 14 Messa
Kl. 15.30 Messukaffi – Námskeiðslok
Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar.
Verð fyrir fæði og gistingu í Skálholtsskóla í 3 sólarhringa: kr. 26.000,-
Þátttökugjald er kr. 15.000,- (Innifalið er kennsla, kennslugögn o.fl.)
Skráning fer fram hjá Arngerði í síma 856-1597 eða á netfangið arngerdur.arnadottir@kirkjan.is
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2009 en hámarksfjöldi þátttakenda er 30.
Staðfestingargjald kr. 10.000,- greiðist við skráningu eða eigi síðar en 1. júní. Ljúka þarf síðan við að greiða fyrir námskeiðið að fullu fyrir 1. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur Arngerður María í síma 856-1597 eða á arngerdur.arnadottir@kirkjan.is
ORGANISTANÁMSKEIÐ 2009
Námskeið fyrir organista verður haldið í Skálholti dagana 16. – 20. ágúst 2009. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi organista. Viðfangsefnin eru orgeltónlist Mendelssohns, guðsþjónustan í íslensku kirkjunni, nýtt efni fyrir orgel og kóra í Söngvasjóði kirkjunnar og möguleikar á skapandi listflutningi í helgihaldinu. Kennt verður á þremur stöðum, í Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og Selfosskirkju.
Leiðbeinendur verða Susan Landale frá París, sem heldur meistaranámskeið með Mendelssohn sem aðalviðfangsefni, Eyþór Ingi Jónsson frá Akureyri, sem kennir litúrgískan orgelleik og kórspuna og Hörður Áskelsson, sem kynnir og æfir kórefni til notkunar í guðsþjónustum. Þeir Eyþór og Hörður munu notast við efni úr Söngvasjóði kirkjunnar og fá til liðs við sig Sr. Óskar Hafstein Óskarsson. Þeir munu vinna með þátttakendum að nýstárlegri nálgun við útfærslu guðsþjónustunnar, þar sem kórspuni kemur við sögu.
Hluti af kennslu Susan Landale er fyrirhugaður í Selfosskirkju.
Til stendur að kynna það efni sem ætlað er til söngs á Kórastefnu árið 2010.
Einnig mun Sibyl Urbancic vera með stutt Feldenkrais námskeið, sérstaklega sniðið að þörfum organista.
Þátttakendur skiptast í tvo hópa, annars vegar þeir sem sækja meistaranámskeið Susan Landale ásamt hinum hlutanum sem við köllum “Messan” undir leiðsögn Sr. Óskars, Eyþórs og Harðar. Hins vegar þeir sem eingöngu sækja námskeiðið “Messan”. Athugið að einungis er pláss fyrir 6 þátttakendur á meistaranámskeiðinu en ætlast er til þess að þeir taki þátt í hinum hluta námskeiðsins “Messan”, fyrir hádegi alla dagana. Eftir hádegi á mánudeginum sitja allir þátttakendur, þ.e.a.s báðir hóparnir fyrirlestur Susan Landale. Eftir hádegið hina dagana eru meistaranámskeiðsþátttakendur hjá Susan Landale en hinir sækja þá tíma hjá Herði og Eyþóri.
Dagskrá námskeiðsins:
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 14 Tónlistarmessa í Skálholtsdómkirkju – Þátttakendur á barnakórstjóranámskeiði sjá um tónlistarflutning
Kl. 15.30 Messukaffi
Kl. 17 Setning organistanámskeiðs – kynning á námsgögnum
Kl. 18 Kvöldverður
Kl. 20 Feldenkrais námskeið með Sibyl Urbancic
Mánudagur 17. ágúst
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.15 Messan, vettvangur sköpunar – allir
Kl. 12-13 Hádegiverður
Kl. 13 Mendelssohn fyrirlestur hjá Susan Landale – allir
Kl. 15 Kaffi
Kl. 16 Messan / Mendelssohn masterclass á Selfossi frá 16-18,30
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 21 Messa
Þriðjudagur 18. ágúst
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.15 Messan, impróvisasjón – allir
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13 Messan / Mendelssohn masterclass á Selfossi
Kl. 15 Kaffi
Kl. 16 Kynning á efni / Mendelssohn – einstaklingstímar í Skálholtskirkju
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.30 Kvöldverður
Kl. 19.15 Fyrirlestur – Eyþór Ingi Jónsson og sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson
Kl. 21.00 Orgeltónleikar í Selfosskirkju
Miðvikudagur 19. ágúst
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.15 Messan – allir
Kl. 12-13 Hádegisverður
Kl. 13 Messan / Mendelssohn masterclass á Selfossi
Kl. 15 Kaffi
Kl. 16 Kynning á efni / Mendelssohn masterclass í Skálholtskirkju
Kl. 18 Aftansöngur
Kl. 18.15 Generalprufa fyrir messu kvöldsins
Kl. 19.30 Kvöldverður
Kl. 20.30 Orgeltónleikar í Skálholtskirkju
Kl. 21 Messa
Fimmtudagur 20. ágúst
Kl. 9 Morgunsöngur
Kl. 9.15 Morgunverður
Kl. 10 Námskeiðsslit og fararblessun
Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar.
Verð fyrir fæði og gistingu í Skálholtsskóla í 4 sólarhringa: kr. 32.000,-
Þátttökugjald er kr. 15.000,- (Innifalið er kennnsla, kennslugögn o.fl.)
Skráning fer fram hjá Arngerði í síma 856-1597 eða á netfangið arngerdur.arnadottir@kirkjan.is
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2009
Staðfestingargjald kr. 10.000,- greiðist við skráningu eða eigi síðar en 1. júní. Ljúka þarf síðan við að greiða fyrir námskeiðið að fullu fyrir 1. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur Arngerður María í síma 856-1597 eða á arngerdur.arnadottir@kirkjan.is



