Norræna kirkjutónlistarmótið 2012

Næsta norræna kirkjutónlistarmót verður haldið á Íslandi eftir 3 ár, nánar tiltekið 13.-16. september 2012.  Á síðasta móti sem haldið var í Stavnger í septembermánuði síðasta árs tók Kjartan Sigurjónsson, skv. tilnefningu FÍO, við starfi sem nýr forseti norræna kirkjutónlistarráðsins.

Verkefnið sem bíður Kjartans, sem forseta norræna kirkjutónlistarráðsins, er, í samvinnu við íslenskt kirkjutónlistarfólk, að skipuleggja næsta mót 2012. Undirbúningur er nú þegar hafinn í samstarfi við Söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar.

Námskeið í Skálholti í ágúst

Það hefur verið ákveðið að halda tvö námskeið í röð í Skálholti með svipuðu sniði og í fyrra. Fyrra námskeiðið fyrir barnakórastjórnendur verður haldið frá 13. – 16. ágúst. Leiðbeinendur verða Sibyl Urbancic frá Vínarborg og Margrét Pálmadóttir, báðar þrautreyndir stjórnendur og afrekskonur. Seinna námskeiðið fyrir organista verður haldið dagana 16. – 20. ágúst, en þar munu leiðbeina þau Susan Landale frá París og Eyþór Ingi Jónsson frá Akureyri, auk Harðar Áskelssonar. Susan Landale heldur meistaranámskeið með Mendelssohn sem aðalviðfangsefni, en Hörður og Eyþór munu vinna með kór- og orgelefni fyrir guðsþjónustuna. Til stendur að kynna nýja kór- og orgeltónlist fyrir helgihald og að halda áfram tilraunum með kórimpróvisasjón í helgihaldi. Eins verður kynnt það efni sem ætlað er til söngs á Kórastefnu árið 2010. Það er von okkar að organistar fjölmenni á þetta námskeið og að við getum byggt ofan á þann árangur sem náðist í fyrra. Nánari upplýsingar um námskeiðin verða birtar hér á síðunni í febrúar.

Námsferð organista til Austur-Þýskalands, 16. – 23. október 2008

Hópur íslenskra organista, 22 talsins héldu í námsferð til Þýskalands nú á haustdögum. Tilgangur ferðarinn var að kynnast einstæðum orgelum frá þeim tíma sem Jóhann Sebastian Bach var uppi, orgelum sem hann þekkti og lék orgelverk sín á. Á því svæði sem heimsótt var starfaði einn helsti orgelsmiður sögunnar, Gottfried Silbermann, en hann hafðið mikil áhrif á þróun orgelsmíði langt út fyrir sinn heimavöll. Auk þess gafst tækifæri á að kynnast orgelum frá öðru blómaskeiði orgelsins í Þýskalandi, rómantíska tímanum, en þar ber hæst orgelsmiðurinn Wilhelm Sauer, sem smíðaði aðal orgel Tómastarkirkjunnar í Leipzig, þar sem Páll Ísólfsson lærð orgelleik og starfaði um tíma.

Lesa áfram

Kórastefna kirkjunnar í ágúst 2008

Kórastefna kirkjunnar var haldin í Hallgrímskirkju, 21. til 24. ágúst 2008. Þátttakendur sem voru á annað hundrað talsins, komu úr kirkjukórum landsins, m.a. frá Akureyri, Akranesi, Egilsstöðum og Grindavík.

Lesa áfram

Organistanámskeið í Skálholti á vegum Söngmálastjóra, ágúst 2008

Dagana 17. til 21. ágúst síðastliðinn var haldið námskeið fyrir organista í Skálholti. Þátttakendur voru 12 talsins og komu víðsvegar að af landinu. Leiðbeinendur voru Hörður Áskelsson, Eyþór Ingi Jónsson og hinn virti kennari og organisti, Mattías Wager. Einnig nutum við góðrar aðstoðar átta félaga úr Schola Cantorum sem tóku að sér hlutverk æfingakórs. Á daginn fór fram kennsla, bæði í formi hóptíma og einkatíma en á kvöldin fengum við notið tónleika af ýmsu tagi.

Lesa áfram

Barnakórstjóranámskeið í Skálholti, ágúst 2008

Dagana 14. til 17. ágúst 2008 stóð Söngmálastjóri fyrir námskeiði í Skálholti sem ætlað var stjórnendum barnakóra. Þátttaka á námskeiðinu var mjög góð eða rúmlega 20 manns. Þórunn Björnsdóttir og Jón Stefánsson voru leiðbeinendur og mætti Þórunn með lítinn hóp af ungum söngvurum úr Kór Kársnesskóla og Jón með 12 stúlkur úr Graduale nobili. Þau Þórunn og Jón gáfu þátttakendur á námskeiðinu innsýn í sínar árangursríku þjálfunaraferðir með því að stýra úrvalssöngvurum úr sínum barna- og unglingakórum og taka jafnframt hina fullorðnu þátttakendur með í skapandi kennslu.  Einnig kynntu þau nýtt efni sem ávallt er þörf á, ekki hvað síst á haustin við upphaf vetrarstarfsins. Mikið var talað um hversu þarft þetta framtak væri, ekki hvað síst til að fá hugmyndir og innblástur fyrir veturinn.
Árangur þátttakenda kom síðan vel í ljós í messu í Skálholtskirkju þ. 17. ágúst, þegar allir þátttakendur stjórnuðu stúlkunum úr Graduale Nobili af mikilli röggsemi. Síðast en ekki síst voru kvöldin vel nýtt til ýmiss konar samveru, í formi fyrirlestra, skrafs, söngs og leikja.

Stefnt er að því að halda námskeið með svipuðu sniði í ágúst 2009. Nánari upplýsingar verða birtar í janúar.

Sálmafoss 2008

Svonefndur “Sálmafoss” var haldinn í fyrsta skipti á Menningarnótt ársins 2007. Þetta framtak hlaut sérlega góðar undirtektir og lítur nú út fyrir að “Sálmafossinn” sé að verða fastur hluti af dagskrá Menningarnætur þar sem viðburðurinn í ár hlaut jafnvel enn betri viðtökur. Áætlað er að nálægt 10.000 manns hafi heimsótt kirkjuna þennan dag, 23. ágúst 2008.

Lesa áfram