Starfsemi

Skrifstofa Söngmálastjóra er til húsa á 3. hæð Biskupsstofu, Laugavegi 31.

Hörður Áskelsson, Söngmálastjóri.  Vinnusími: 528-4096  Gsm: 856-1596

Arngerður María Árnadóttir, aðstoðarmaður Söngmálastjóra.  Vinnusími: 528-4096  Gsm: 856-1597

“Biskup Íslands skipar söngmálastjóri til þess að hafa umsjón með kirkjutónlistinni”

(Tónlistarstefna þjóðkirkjunnar bls. 3).

Frá haustdögum 2005 hefur Hörður Áskelsson verið skipaður söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í hlutastarfi.
Allt frá upphafi hefur hann lagt sérstaka áherslu á það mikilvæga atriði Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar “að efla safnaðarsöng”.
Söngmálastjóri hvetur organista og presta til að vinna saman að þessu markmiði.
Með stofnun “Söngvasjóðs kirkjunnar”, vefbanka sem inniheldur allskonar tónlistarefni til notkunar í tónlistarstarfi kirkjunnar, hafa opnast möguleikar til að miðla organistum útsetningum og nýju tónlistarefni, sem sérstaklega er ætlað til að örva þátttöku almennings í söng og til að fjölga möguleikum á vixlsöng kórs og safnaðar. Söngvasjóðurinn er vettvangur söngmálastjóra til að koma upplýsingum til organista auk þess sem organistar geta nýtt hann til skoðanaskipta.
Söngmálastjóri er til ráðuneytis um allt sem varðar kirkjutónlist, orgel, kirkjukóra o. fl. Söngmálastjóri þjónar starfandi organistum sem ráðgjafi í faglegum efnum.
Félag Íslenskra Organleikara, deild í F.Í.H., þjónar organistum í málum sem snerta kjaramál sem stéttarfélag þeirra.