Stafholtsprestakall

 

Fyrsta skóflustungan að nýjum prestsbústað

Náttúran skartaði sínu fegursta, mildur blær   og sólskin með köflum. Fuglar sungu og flugur suðuðu. Hópur fólks hefur safnast saman í Stafholti. Það er föstudagur 6. maí og tilefnið er ærið, það á að taka fyrstu skóflustungu að nýjum prestsbústað í Stafholti.

Jens Sandholt hjá Skjanna bauð fólk velkomið og lýsti frá sinum bæjardyrum því á hvern hátt hans fyrirtæki kom að þessum framkvæmdum.

Prófasturinn í Vesturlandsprófastsdæmi sr. Þorbjörn Hlynur Árnason blessaði síðan framkvæmdina og alla þá er að verkinu munu koma og sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson las úr Metteusarguðspjalli um hinn hyggna mann er byggði hús sitt á bjargi.

Hápunktur samkomunnar var svo er sóknarpresturinn í Stafholtsprestakalli sr. Elínborg Sturludóttir tók hina fyrstu skóflustungu.

Að athöfn lokinni bauð Skjanni upp á kaffi og meðlæti í gamla prestsbústaðnum. Borgfirðingar glöddust og náttúran með. Baráttumál sóknarbarna var komið í farsæla höfn.

Birna G. Konráðsdóttir, 7/5 2011 kl. 13.35

     

    Borgir, 311 Borgarnesi. · Kerfi RSS