Reising hafin á nýja íbúðarhúsinu í Stafholti
Í vor var tekin skóflustunga að nýju íbúðarhúsi í Stafholti. Fljótlega hófust framkvæmdir við grunn og að steypa sökkla. Í sumar hefur verktakinn Eiríkur I. Ingólfsson og hans menn smíðað útveggina, sem eru úr tré, á verkstæði fyrirtækisins. Nú er hins vegar búið að reisa veggina. Það var gert síðasta þriðjudag 16. ágúst.
Stefnt er að því að sóknarpresturinn og fjölskylda hans flyti í nýja húsið fyrir jólin á þessu ári.
Birna G. Konráðsdóttir, 19/8 2011 kl. 1.53