Yfirfull Strandarkirkja
Aldrei hafa jafn margir sótt messu í Strandarkirkju eins og í gær sunnudaginn 2. ágúst 2009 en þá var kirkjudagur í Strandarkirkju. Um 200 manns voru í kirkjunni þegar mest var, kirkjuskipið var fullsetið og kirkjugangur, fólk stóð í anddyri og sat úti við opna glugga, margir urðu frá að hverfa sumir þeirra brugðu sér í kaffi í T-bæ. Strax að messu lokinni þar sem dr. Pétur Pétursson prédikaði flutti Jónas H. Haralz mjög athyglisvert erindi um efnahagshrunið og leiðina upp en og Guðrún Ásmundsóttir flutti skemmtilega hugvekju. Veðrið var yndislegt, heiðskír himinn og lauflétt norðangola. Organisti í messunni var Hannes Baldursson og félagar úr kirkjukór Þorlákskirkju leiddu söng og fyrir altari var Baldur Kristjánsson. Guðrún Ásmundsdóttir las lestra.
Baldur Kristjánsson, 3/8 2009 kl. 11.14



