FRÁBÆRIR TÓNLEIKAR BJARGAR þÓRHALLSDÓTTUR OG ELÍSABETAR WAAGE
Baldur Kristjánsson, 17/8 2009
Næstkomandi sunnudag 16. ágúst kl. 14 halda Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona og Elísabet Waage hörpuleikari
tónleika í Strandarkirkju. Á efnisskránni eru nokkrar Maríubænir í tilefni af Maríumessu 15. ágúst (dagur
himnafarar Maríu meyjar) ásamt íslenskum þjöðlögum og sönglögum eftir Sigurð Þórðarson, Sigvalda Kaldalóns,
Jón Ásgeirsson o.fl. Þá mun sr. Baldur Kristjánsson segja frá Strandarkirkju og flytja bænarorð. Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis og allir velkomnir.
Baldur Kristjánsson, 12/8 2009
Þessi föngulegi hópur árgangur 1947 úr MR hlýddi á fyrirlestur eða frásögn sóknarprests um Strandarkirkju og Selvog í dag. Það vantaði hvorki góða veðrið og góða skapið. Á myndinni má sjá margt kunnulegra andlita. Tvíklikkið á myndina ef þið viljið fá hana stærri. Mynd BK
Baldur Kristjánsson, 11/8 2009
Aldrei hafa jafn margir sótt messu í Strandarkirkju eins og í gær sunnudaginn 2. ágúst 2009 en þá var kirkjudagur í Strandarkirkju. Um 200 manns voru í kirkjunni þegar mest var, kirkjuskipið var fullsetið og kirkjugangur, fólk stóð í anddyri og sat úti við opna glugga, margir urðu frá að hverfa sumir þeirra brugðu sér í kaffi í T-bæ. Strax að messu lokinni þar sem dr. Pétur Pétursson prédikaði flutti Jónas H. Haralz mjög athyglisvert erindi um efnahagshrunið og leiðina upp en og Guðrún Ásmundsóttir flutti skemmtilega hugvekju. Veðrið var yndislegt, heiðskír himinn og lauflétt norðangola. Organisti í messunni var Hannes Baldursson og félagar úr kirkjukór Þorlákskirkju leiddu söng og fyrir altari var Baldur Kristjánsson. Guðrún Ásmundsdóttir las lestra.
Baldur Kristjánsson, 3/8 2009
Kirkjudagur í Strandarkirkju sunnudag. Messa kl. 14.00
Yfirskrift:Jesaja 26.3……þjóð sem hefur stöðugt hugarfar.
Pétur Pétursson prófessor prédikar
Séra Baldur Kristjánsson sóknarprestur þjónar fyrir altari
Organisti: Hannes Baldursson
Samkoma eftir messu
Jónas H. Haralz fv. bankastjóri talar um: Efnahagshrunið og heiminn sem við tekur
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona flytur hugvekju.
Strandarkirkja
Baldur Kristjánsson, 31/7 2009
Við messum á sunnudaginn kl. 14:00 Hannes Baldursson spilar á orgelið og Baldur K
ristjánsson sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar um sumarið. Félagar úr kór Þorlákskirkju leiða söng.
Baldur Kristjánsson, 26/6 2009
Baldur Kristjánsson, 26/6 2009
Kirkjan er opin alla daga yfir sumartímann. Opnað er um kl. níu og lokað um kvöldmat.
Háaleiti 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771/8980971 , fax 4833566 · Kerfi ![]()