Maríusystur hlýða á fyrirlestur
Baldur Kristjánsson, 10/5 2009
Baldur Kristjánsson, 10/5 2009

Þórarinn Friðriksson var fermdur í Strandarkirkju í dag. Hér er hann í miðju ásamt foreldrum sínum Friðrik og Ástu og öfum og ömmum Þórarni Snorrasyni, Jóhönnu Eiríksdóttur og Einey Þórarinsdóttur og Hjalta Þórðarsyni (hægra megin frá okkur séð). Veður var gott. Söngur kirkjukórsins var með miklum ágætum. Athöfnin ljúf á alla lund. Fermingarbarnið til fyrirmyndar. Ný og falleg kerti á altari. Kirkjan hrein og fín eins og hún er raunar alltaf. Á eftir var fermingarveisla í Hlið. Mynd BK
Baldur Kristjánsson, 3/5 2009
Baldur Kristjánsson, 28/4 2009
Vorfuglarnir komnir. Ferðamenn, fjölskyldur, hópar. Hér má sjá hóp gamalla
a skáta sem komu í kirkjuna á sunnudaginn var og hlýddu á fyrirlestur frá séra Baldri um kirkjuna og lífið í Selvoginum fyrrum. Fremst vinstrra megin má kenna Karlinnu Sigmundsdóttur frá Hveragerði og Magnús mann hennar fyrir aftan hana og langfremst til hægri Ólaf Pétursson frá Stóru Tungu á Fellsströnd.
Baldur Kristjánsson, 27/4 2009
Í gær, 21. apríl heiðraði biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson Þórarin Snorrason bónda í Vogsósum í Selvogi fyrir áratugastörf í þjónustu Strandarkirkju. Þórarinn er uppalinn á Vogsósum og hefur komið að þjónustu við Strandarkirkju síðan 1947 má segja er hann byrjaði að syngja við kirkjuna. Þórarinn hefur verið kirkjuvörður, meðhjálpari og formaður sóknarnefndar meira og minna á fullorðinsárum sínum. Strandarkirkjunefnd blés til heiðurskaffis á Biskupsstofu þar sem biskup hélt tölu og afhenti Þórarni viðurkenningu í formi áritaðrar bókar. Jóhanna Eiríksdóttir eiginkona Þórarins var einnig boðsgestur enda hefur hún þjónað kirkjunni sem sóknarnefndarmanneskja og hugmyndasmiður og eru spor hennar einnig óteljandi í þjónustu við Strandarkirkju . Viðstaddar voru einnig Guðrún Tómasdóttir formaður sóknarnefndar og Sylvía Ágústsdóttir móðir hennar sem er staðarhaldari i Strandarkirkju. Auk þeirra voru viðstödd Höskuldur Sveinsson arkitekt þjóðkirkjunnar sem dró upp myndir af hugsanlegu þjónustuhúsi við kirkjuna, Kristín Mjöll Kristinsdóttir innanhússarkitekt kirkjunnar, séra Jón Ragnarsson sem er í Strandarkirkjunefnd, Ragnhildur Benediktsdóttir sem er formaður Strandarkirkjunefndar og síðastan skal telja undirritaðan Baldur Kristjánsson sem tók myndirnar sem vonandi fylgja með þessum pistli. BK
ps. Fleiri myndir af athöfninni má sjá í myndaalbúmi. BK
Baldur Kristjánsson, 22/4 2009
Á föstudaginn langa verður píslasaga Krists lesin í Strandarkirkju kl. 14:00
3. maí kl. 14:00 verður ferming í kirkjunni
Fermingarbarn er:
Þórarinn Friðriksson Heiðmörk 2C
Baldur Kristjánsson, 13/3 2009
Kirkjan er opin alla daga yfir sumartímann. Opnað er um kl. níu og lokað um kvöldmat.
Háaleiti 815 Þorlákshöfn. Sími 4833771/8980971 , fax 4833566 · Kerfi ![]()