Námskeið fyrir sóknarnefndarfólk 2009-19. nóv kl. 21:00 Selfossi
Komin dagsetning á námskeið fyrir sóknarnefndarfólk í prófastsdæmunum þremur á Suðurlandi um hinar margvíslegu skyldur og reglur sem gilda um kirkjustarfið og hlutverk þeirra sem þar starfa og leggja sitt af mörkum.
Námskeiðið verður í boði fyrir alla í prófastsdæmunum þremur á Suðurlandi.
Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember n.k. í safnaðarheimilinu á Selfossi og hefst kl. 17:00 boðið verður upp á léttan málsverð kl.19 og reiknað er með að verði lokið í kringum 21:00.
Eins og flestum er ljóst þá eru margvísleg mál er okkur varða til afgreiðslu á kirkjuþingi svo það verður fróðlegt fyrir að heyra starfsfólk biskupsstofu skýra fyrir okkur niðurstöðu þeirra mála.
Ég vona auðvitað að sem flestir sjái sér fært að mæta en sérstaklega væri þó gaman að sjá þau sem eru nýliðar í sóknarnefndum. Komið endilega með allar ykkar spurningar og dembið þeim yfir þá sem eiga að hafa svörin.
Leiðbeinendur á þessu námskeði verða sr. Halldór Reynisson og Anna Guðmunda Yngvarsdóttir lögfræðingur á biskupsstofu.
Axel Árnason Njarðvík, 14/11 2009 kl. 14.31