Aðventustund í Þykkvabæjarkirkju
Fimmtudaginn 10. desember verður aðventustund í Þykkvabæjarkirkju kl. 20:00.
Þar mun Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngja ásamt Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna. Stúlkur úr Þykkvabænum lesa ljós og barnakórinn flytur hluta úr jóladagskrá sinni frá sl. sunnudegi. Það er gaman að geta þess að sunnudaginn 6. desember flutti Barnkór Odda- og Þykkvabæjarkirkna aðvetnudagskrá í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu, það voru leikriti og ljóð sem flutt voru og sungnir aðventusöngvar. Var bekkurinn þétt setinn og að dagskrá lokinni var boðið upp á piparkökur og kakó. Þær stóðu sig vel stelpurnar í barnakórnum og eiga hrós skilið fyrir dugnað á æfingum og góða frammistöðu.
Guðbjörg Arnardóttir, 10/12 2009 kl. 11.55