Suðurland

 

Hvíldardagur

            Nýtur þú þess að eiga sunnudag sem hvíldardag,einu sinni í viku?  Ef  svo er, þá  óska ég þér til hamingju, en ef svo er ekki bið ég þig að hugleiða,  hvað þú gætir

verið að fara á mis við.

            ”Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna, og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins”, sagði Jésús. (Mk 2,27) Hversvegna? Vegna þess að við verðum að eiga þennan dag fyrir heimiliokkar og fjölskyldu, eiga daginn til að tala saman, þakka og njóta, hrósa, byggja upp, hlúa að ást og kærleika og gleðjast yfir því sem áunnist hefur. Ef hvíldardagurinn verður nánast árið um kring, annasamasti dagur vikunnar, þar sem stefnt er á heimsóknir eða móttöku gesta eða keypta skemmtun eða að það ógerða á að vinnast einmitt þann dag, þá er hætt við að við týnum okkur sjálfum og því dýrmætasta sem Drottinn gefur, að geta átt kærleikssamfélag við okkar nánustu.

            Aðrir dagar vikunnar eru í önnum lífsbaráttunnar og venjunar. Samtölin verða með líkum hætti með áminningartón og jafnvel stundum stríðni og þegar árin verða fleiri og fjölskyldan þekkir betur hrynjanda daganna, fækkar samtölum og því nána sem tengist snertingu og hlýju. Það er næstum eins og útvarpið, sjónvarpið, dagblöðin og fréttirnar taki við með kaldan samtalsgrundvöll á heimilinu.

            Í þessu umhverfi er lítill tími fyrir kirkjugöngu á sunnudegi, ef til vill á stórhátíðum, en næstum alltaf til að fylgja vini eða sveitunga við leiðarlok. Á þeirri stundu minnumst við hins liðna og horfumst í augu við það sem verður í lífi okkar sjálfra.

            Jésús kallaði á tollheimtumanninn við tollbúðina, sem hafði að ævistarfi að hugsa um og telja peninga. Við Íslendingar vorum í þessum fjötrum peningahyggju, sem nú hefur mætt okkur með óvægnum hætti til uppgjörs. Getur verið að kall Drottins til Levi Alfeussonar hljómi til þín: Fylg þú mér. Og ef þú heyrir gætir þú fylgt honum á ferð hans með lærisveinunum um sáðlönd á hvíldardegi við að tína upp fullþroskuð öx.

            Gætir þú verið á þessari ferð með honum á lífsleið þinni, nema því aðeins að þú hafir sinnt ræktun, gefið áburð og sáð? Hann kallar þig til fylgdar og ábyrgðar gagnvart þínum nánustu, að þú hlúir að með kærleika, tínir síðan öxin og njótir uppskeru af því sem þú hefur vel gert.

            Við getum því aðeins notið hvíldar að við höfum starfað vel og gert okkar besta. Við verðum  að kunna að gefa okkur hvíldarardag, því sá dagur var okkur gefinn, fyrir okkur, en við urðum ekki til fyrir hann.

                                                            Halldór Gunnarsson

Axel Árnason Njarðvík, 5/12 2009 kl. 21.13

     

    Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS