Bænadagar og páskar í Landakirkju í Eyjum
Guðsþjónusta verður í Landakirkju alla helgidagana að venju. Á skírdagskvöld kl. 20 er kvöldmessa sem lýkur með því að sóknarnefndarfólk og starfsmenn afskrýða altarið á viðeigandi hátt. Lagðar eru fimm rósir á altarið til að minna á fimm sár Krists á krossinum. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar, kantors, í öllum guðsþjónustunum. Prestar eru sr. Kristján Björnsson og sr. Guðmundur Örn Jónsson.
Föstudaginn langa verður guðsþjónusta kl. 11 árdegis og mun Kór Landakirkju flytja þar kórverk og mikið verður lagt upp úr kirkjulegri tónlist. Félagar úr Leikfélagi Vestmannaeyja lesa úr píslasögunni og lesin verða síðustu orð Krists á krossinum. Guðsþjónustunni lýkur með tignun krossins.
Hátíðarguðsþjónusta er á páskadagsmorgunn kl. 8 og að henni lokinni er morgunverður í Safnaðarheimilinu í boði sóknarinnar með nýbökuðum rúnnstykkjum og vínarbrauði. Þegar líður á morguninn verður hátíðarguðsþjónusta á Hraunbúðum (kl. 10.30).
Annan dag páska verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 þar sem barnakórinn Litlir lærisveinar syngja undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur.
Kristján Björnsson, 29/3 2010 kl. 12.19