Suðurland

 

80 ára afmæli Sólheima

Í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og 5 ár afmæli Sólheimakirkju, verður hátíðarguðsþjónusta í Sólheimakirkju sunnudaginn 4. júlí kl. 14:00. Eftir guðsþjónustuna verða léttar veitingar í Sesseljuhúsi og kl. 16:00 verður þar frumsýnd heimildarmynd um Sesselju og Sólheima.

Guðsþjónustan kl. 14:00
Vígð verður ný altaristafla
Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur prédikar
Fyrir altari þjóna sr. Birgir Thomsen, sr. Gylfi Jónsson og sr. Valgeir Ástráðsson
Ritningarlestra les Guðmundur Ármann Pétursson
Organisti er Ester Ólafsdóttir
Óperusöngvararnir Davíð Ólafsson og Garðar Thor Cortes syngja við athöfnina
Lokabæn les Úlfhildur Stefánsdóttir
Meðhjálparar eru Ólafía E. Guðmundsdóttir, Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen

Axel Árnason Njarðvík, 29/6 2010 kl. 17.36

     

    Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS