Suðurland

 

Áfallastreita í kjölfar missis

Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur ræðir um áfallastreitu í kjölfar missis á fræðslukvöldi hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð, n.k. fimmtudagskvöld 12. janúar. Fyrirlesturinn er í safnaðarheimili Háteigskirkju í Reykjavík og hefst kl. 20:30. Hann er öllum opinn.

Á undan eða kl. 19:00 verður opið hús í safnaðarheimilinu. Þangað getur fólk komið og fengið sér kaffi og rætt saman.
Berglind Guðmundsdóttir lauk BA prófi í sálfræði frá HÍ árið 1998. Berglind lagði stund á framhaldsnám í klínískri sálfræði við Ríkisháskóla New York ríkis í Buffaló í Bandaríkjunum. Hún lauk þaðan meistaraprófi árið 2004 og doktorsprófi árið 2006 með áherslu á kvíðaraskanir og afleiðingar áfalla.

Berglind hefur starfað sem sálfræðingur hjá Landspítala frá árinu 2006. Hún sinnir m.a. greiningar- og meðferðarvinnu við áfallamiðstöð/neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis á Landspítala. Berglind stundar einnig rannsóknir á eðli og afleiðingum áfalla og sinnir auk þess handleiðslu annarra fagaðila.

Axel Árnason Njarðvík, 10/1 2012 kl. 11.28

     

    Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS