Fermingarstörfin
Í námskrá fermingarstarfanna, útg 1999 kemur fram eftirfarandi:
Fermingarstörfin eiga að:
• vekja og efla með ungmennunum trú á Drottin Jesúm Krist
• kenna þeim grundvallaratriði kristinnar trúar
• virkja þau í starfi safnaðarins
Í samræmi við þetta skal í fermingarstörfunum höfðað til:
• viðhorfa unglinganna, reynslu þeirra, upplifunar og tilfinninga;
• þekkingar þeirra og skilnings;
• vilja unglinganna, færni þeirra og athafnasemi.
þessum markmiðum skal náð með:
• fjölbreyttri fræðslu (s.s. Þekkingarmiðlun, umræðum, hópastarfi, verkefnavinnu);
• helgihaldi (m.a. í tengslum við fermingartímana og sunnudagsguðsþjónustuna);
• þátttöku í safnaðarstarfi og þjónustuverkefnum (í söfnuði og kirkjunni í heild).
Inntak þeirra
Í fermingarstörfunum er skylt að fræða ungmennin um alla eftirfarandi þætti:
Breytnin: Boðorðin 10 og tvöfalda kærleiksboðorði
Kristinn mannskilningur
Kenningin: Trúarjátningin
Faðirinn - Skaparinn
Sonurinn - Frelsarinn
Heilagur andi - Helgarinn
Kirkjan
Eilífa lífið
Trúarlífið: Bænin og Sakramentin
Bænalíf. Faðir vor
Biblían
Skírnin
Máltíð Drottins og messan
Söfnuðurinn
Kristniboð og hjálparstarf
Um stundafjöldan segir að:
ávallt skal þó gætt að tvennu:
• að stundafjöldi sé 45-60 stundir (miðað við 40 mín.); og
• að starfið sé í beinum tengslum við guðsþjónustulíf, tilbeiðslu og þjónustu, safnaðarins.
Stundirnar skiptist í:
• fræðslu (30 stundir);
• kirkjusókn (3-10 guðsþjónustur);
• þátttöku í safnaðarstarfi (8-12 stundir); og
• sameiginlega fundi með foreldrum og fermingarbörnum (4-8 stundir).
Æskilegt er að um bænadaga og páska sé ekki fermt.