Suðurland

 

Ólafsvallakirkja: Guðsþjónusta með fiðluívafi

Guðsþjónusta var haldin í Ólafsvallakirkju á Skeiðum, sunnudaginn 16. ágúst kl. 14.00.

Reinhard Halsmayr, fiðlukennari við Tónlistarháskóla Vínarborgar spilaði á fiðluna sína í guðsþjónustunni. Reinhard spilaði í Stóra-Núpskirkju sumarið 2006 með stórkostlegum og eftirminnilegum hætti þar sem hann tjáði aðdáun sína á náttúru landsins og endurspeglaði upplifun sína á Íslandi.

 

Axel Árnason Njarðvík, 13/8 2009

Sumar í Odda

Þá er tónleikaröðin Sumar í Odda hafin. Það er Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna sem skipuleggur og hefur umsjón með tónleikunum. Tónleikaröðin hófst með þann 30. júlí. Þá sungu og spiluðu við góðar undirtektir Jóhann Stefánsson, Margrét Stefánsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson. Var vel mætt á tónleikana og þóttu þeir vel heppaðir. Framundan er ekki síðri skemmtun og er dagskráin á þessa leið.

6. ágúst. Oddakirkja kl. 20:00.
Sönghópurinn VoxFox.
20. ágúst. Oddakirkja kl. 18:00.
Dúó Stemma, fjölskyldudagskrá.
27. ágúst. Safnaðarheimilið á Hellu kl. 20:00.
Stúlknakórinn Hekla ásamt hljómsveit.
4. sept. Oddakirkja kl. 20:00.
Óli Stolz og félagar.

Aðgangseyrir á tónleikana er 1000 krónur og innifalið í verðinu er hið margrómaða kirkjukórsbakkelsi að tónleikunum loknum.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Guðbjörg Arnardóttir, 4/8 2009

Bænhúsið að Núpsstað

Guðsþjónusta verður um verslunarmannahelgina í bænhúsinu að Núpsstað í Skaftárhreppi sunnudaginn 2. ágúst nk. og hefst kl. 14:00.

Séra Ingólfur Hartvigsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.

Kristján Gissurarson frá Eiðum leikur á orgel.

Félagar úr kór Prestsbakkakirkju leiða söng.

Hestamenn eru hvattir til þess að koma ríðandi til messu. Farin verður hópreið frá Kálfafelli í Fljótshverfi og lagt af stað þaðan kl. 12.30.

Fjölmennum til guðsþjónustunnar og eigum þar notalega stund.

Séra Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur.

Ingólfur Hartvigsson, 28/7 2009

Voces Thules í Þykkvabæjarklausturskirkju

Tónleikar og Þorlákstíðir á Þorláksmessu að sumri mánudaginn 20. júlí 2009

Sönghópurinn Voces Thules verður með tónleika í Þykkvabæjarklausturskirkju í Álftaveri kl. 19.00. Miðaverð er 1.500 krónur. Miðasala verður við innganginn.

Kaffisala verður eftir tónleikanna hjá kvenfélaginu Framtíðinni í Álftaveri og kvenfélagi Hvammshrepps í þjónustuhúsi kirkjunnar. Allur ágóði af tónleikunum og kaffisölunni rennur til kaupa á augnlækningatækjum fyrir heilsugæslustöðina í Vík.

Helgistund verður kl. 21.00 þar sem Voces Thules syngur úr Þorlákstíðum. Séra Árni Svanur Daníelsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Ingólfi Hartvigssyni.

Ingólfur Hartvigsson, 20/7 2009

Guðsþjónusta í Sólheimakirkju 12. júlí kl. 14:00

Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar.
Organisti er Ester Ólafsdóttir
Ritningarlestra les Valgeir Fridolf Backman
Lokabæn flytur Úlfhildur Stefánsdóttir
Meðhjálparar eru Ólöf Erla Guðmundsdóttir og
Erla Thomsen
Almennur safnaðarsöngur
Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum

Birgir Thomsen, 10/7 2009

Kirkjudagur Sólheimakirkju 5. júlí kl. 14:00

Sunnudaginn 5. júlí kl. 14:00 verður hátíðarguðsþjónusta í Sólheimakirkju í tilefni af 4ra ára afmælis kirkjunnar og 79 ára afmælis Sólheima
Forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein prédikar
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari
Ritningarlestra les Guðmundur Ármann Pétursson
Ellen Kristjánsdóttir syngur einsöng við undirleik Esterar Ólafsdóttur organista
Almennur safnaðarsöngur
Meðhjálparar eru þau Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen
Veið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum

Birgir Thomsen, 2/7 2009

Sólheimakirkja sunnudaginn 28. júní kl. 14:00

Barn borið til skírnar
Prestur, sr. Birgir Thomsen
Organisti, Ester Ólafsdóttir
Almennur safnaðarsöngur
Meðhjálparar eru Ólöf Erla Guðmundsdóttir og Erla Thomsen
Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum

Birgir Thomsen, 26/6 2009

Kálfholtskirkja

Kvöldguðsþjónusta, sunnudaginn 21. júní, kl. 21.00Sóknarbörn og gestir þeirra eru þetta kvöld, hvött til að leggja á fáka sína að gömlum og góðum sið og koma ríðandi til kirkju. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti að athöfn lokinni.

Halldóra Þorvarðardóttir, 16/6 2009

Guðsþjónusta á Stóra-Núpi 14.6. kl.14

Guðsþjónusta verður í Stóra-Núpskirkju sunnudaginn 14. júní kl. 14. Í guðspjalli þess sunnudags verður lagt út af orðum Jesú er hann sagði: „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af  sínum þótt auðugur sé.”

Axel Árnason Njarðvík, 11/6 2009

Sjómannadagurinn í Skaftárhreppi

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00 í Langholtskirkju í Meðallandi og síðan róðrakeppni kl. 16.00 við Hæðargarðsvatn. Lið frá gömlu hreppunum, Hörgslandshreppi, Kirkjubæjarhreppi, Leiðvallarhreppi, Skaftártunguhreppi og Álftavershreppi ætla að etja kappi saman og róa hringinn um Hæðargarðsvatn. Og til þess að hækka blóðþrýstingin enn meira þá er Mýrdælingum boðið að vera með.

Veitingasala verður í höndum Kvenfélags Kirkjubæjarhrepps.

Höldum upp á sjómannadaginn með því að mæta með góða skapið og hvetja okkar lið.

Ingólfur Hartvigsson, 3/6 2009

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS