Suðurland

 

Prófastsdæmin þrjú á Suðurlandi í eitt

Frá 30. nóvember 2009 eru prófastsdæmin þrjú á Suðurlandi sameinuð í eitt prófastsdæmi sem nefnd er Suðurprófastsdæmi. Sr. Halldóra Þorvarðardóttir hefur verið settur prófastur frá 1. janúar 2010 til 1. mars 2010 en fyrir þann tíma á tilnefning til biskups að hafa farið fram. Í kjölfarið verður haldinn héraðsfundur og ný héraðsnefnd valin.

Axel Árnason Njarðvík, 16/12 2009

Axel Árnason Njarðvík verður héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi

Biskup Íslands hefur kallað séra Axel Árnason Njarðvík, sóknarprest í Stóra-Núpsprestakalli, til að vera héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi frá og með 1. janúar 2010. Frá sama tíma kemur til framkvæmda sameining Hrunaprestakalls og Stóra-Núpsprestakalls.

Suðurprófastsdæmi varð til við sameiningu Árnes-, Rangárvalla- og Skaftafellsprófastsdæmis, sem samþykkt var á kirkjuþingi í nóvember síðastliðinn. Mikil þörf er á héraðspresti í hinu nýja og víðfeðma Suðurprófastsdæmi. Er honum ætlað að vera prófasti til stuðnings og aðstoðar, annast skipulagningu og umsjón fræðsluverkefna á vegum prófastsdæmisins og Biskupsstofu og veita afleysingaþjónustu.

Héraðsprestur mun einnig sinna tilteknum verkefnum samkvæmt nánari ákvörðun biskups, svo sem vegna vefþjónustu kirkjunnar og á sviði upplýsingatækni. Séra Axel Árnason Njarðvík hefur verið frumkvöðull í vefmálum kirkjunnar og hefur beitt sér fyrir þróun rafrænnar skýrslugerða presta.

Axel Árnason Njarðvík, 16/12 2009

Aðventustund í Þykkvabæjarkirkju

Fimmtudaginn 10. desember verður aðventustund í Þykkvabæjarkirkju kl. 20:00.                                           

Þar mun Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngja ásamt Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna.            Stúlkur úr Þykkvabænum lesa ljós og barnakórinn flytur hluta úr jóladagskrá sinni frá sl. sunnudegi.               Það er gaman að geta þess að sunnudaginn 6. desember flutti Barnkór Odda- og Þykkvabæjarkirkna aðvetnudagskrá í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu, það voru leikriti og ljóð sem flutt voru og sungnir aðventusöngvar.  Var bekkurinn þétt setinn og að dagskrá lokinni var boðið upp á piparkökur og kakó.  Þær stóðu sig vel stelpurnar í barnakórnum og eiga hrós skilið fyrir dugnað á æfingum og góða frammistöðu.

Guðbjörg Arnardóttir, 10/12 2009

Hvíldardagur

            Nýtur þú þess að eiga sunnudag sem hvíldardag,einu sinni í viku?  Ef  svo er, þá  óska ég þér til hamingju, en ef svo er ekki bið ég þig að hugleiða,  hvað þú gætir

verið að fara á mis við.

            ”Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna, og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins”, sagði Jésús. (Mk 2,27) Hversvegna? Vegna þess að við verðum að eiga þennan dag fyrir heimiliokkar og fjölskyldu, eiga daginn til að tala saman, þakka og njóta, hrósa, byggja upp, hlúa að ást og kærleika og gleðjast yfir því sem áunnist hefur. Ef hvíldardagurinn verður nánast árið um kring, annasamasti dagur vikunnar, þar sem stefnt er á heimsóknir eða móttöku gesta eða keypta skemmtun eða að það ógerða á að vinnast einmitt þann dag, þá er hætt við að við týnum okkur sjálfum og því dýrmætasta sem Drottinn gefur, að geta átt kærleikssamfélag við okkar nánustu.

            Aðrir dagar vikunnar eru í önnum lífsbaráttunnar og venjunar. Samtölin verða með líkum hætti með áminningartón og jafnvel stundum stríðni og þegar árin verða fleiri og fjölskyldan þekkir betur hrynjanda daganna, fækkar samtölum og því nána sem tengist snertingu og hlýju. Það er næstum eins og útvarpið, sjónvarpið, dagblöðin og fréttirnar taki við með kaldan samtalsgrundvöll á heimilinu.

            Í þessu umhverfi er lítill tími fyrir kirkjugöngu á sunnudegi, ef til vill á stórhátíðum, en næstum alltaf til að fylgja vini eða sveitunga við leiðarlok. Á þeirri stundu minnumst við hins liðna og horfumst í augu við það sem verður í lífi okkar sjálfra.

            Jésús kallaði á tollheimtumanninn við tollbúðina, sem hafði að ævistarfi að hugsa um og telja peninga. Við Íslendingar vorum í þessum fjötrum peningahyggju, sem nú hefur mætt okkur með óvægnum hætti til uppgjörs. Getur verið að kall Drottins til Levi Alfeussonar hljómi til þín: Fylg þú mér. Og ef þú heyrir gætir þú fylgt honum á ferð hans með lærisveinunum um sáðlönd á hvíldardegi við að tína upp fullþroskuð öx.

            Gætir þú verið á þessari ferð með honum á lífsleið þinni, nema því aðeins að þú hafir sinnt ræktun, gefið áburð og sáð? Hann kallar þig til fylgdar og ábyrgðar gagnvart þínum nánustu, að þú hlúir að með kærleika, tínir síðan öxin og njótir uppskeru af því sem þú hefur vel gert.

            Við getum því aðeins notið hvíldar að við höfum starfað vel og gert okkar besta. Við verðum  að kunna að gefa okkur hvíldarardag, því sá dagur var okkur gefinn, fyrir okkur, en við urðum ekki til fyrir hann.

                                                            Halldór Gunnarsson

Axel Árnason Njarðvík, 5/12 2009

Fréttir frá Voðmúlastaðakapellu

Stjórnarnefnd  Voðmúlastaðakapellu kom saman 25. september í kapellunni og samþykkti að festa kaup á nýju orgeli og bjóða jafnframt gamla orgelið til sölu og leita eftir stuðningi velunnara kapellunnar til kaupanna.

 Formaður Kapellunefndar Guðlaugur Jónsson, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en hann hefur verið formaður nefndarinnar í um 30 ár. Var honum þökkuð fórnfús störf og umhyggja fyrir kapellunni.

Guðlaug Guðlaugsdóttir, Voðmúlastöðum var kjörin formaður, en auk hennar sitja í nefndinni, Pétur Guðmundsson, Sigmar Ólafsson, Viðar Marmundsson og sóknarprestur.

Sr. Halldór Gunnarsson

Axel Árnason Njarðvík, 5/12 2009

Guðþjónustur í Holtsprestakalli í desember 2009

Messað verður í prestakallinu sem hér segir

6. desembar kl. 14 Fjölskylduguðþjónusta í  Eyvindarhólakirkju.

24. desember kl 21 á aðfangadagskvöld  í Eyvindarhólakirkju.

25. desember kl 13 á jóladag í  Stóra-Dalskirkju

25. desember kl 20.30 á jóladagskveldi í Krosskirkju.

25. desember kl 22 á jóladagssíðkveldi í Akureyjarkirkju.

27. desember kl 14 í Akureyjarkirkju. Fjölskylduguðþjónusta.

31. desember kl 14 á gamlársdag í Ásólfsskálakirkju.

Sr. Halldór Gunnarsson

Axel Árnason Njarðvík, 5/12 2009

Námskeið fyrir sóknarnefndarfólk 2009-19. nóv kl. 21:00 Selfossi

Komin dagsetning á námskeið fyrir sóknarnefndarfólk í prófastsdæmunum þremur á Suðurlandi um hinar margvíslegu skyldur og reglur sem gilda um kirkjustarfið og hlutverk þeirra sem þar starfa og leggja sitt af mörkum. 
Námskeiðið verður í boði fyrir alla í prófastsdæmunum þremur á Suðurlandi. 
Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember n.k. í safnaðarheimilinu á Selfossi og hefst kl. 17:00 boðið verður upp á léttan málsverð kl.19 og reiknað er með að verði lokið í kringum 21:00. 
Eins og flestum er ljóst þá eru margvísleg mál er okkur varða til afgreiðslu á kirkjuþingi svo það verður fróðlegt fyrir að heyra starfsfólk biskupsstofu skýra fyrir okkur niðurstöðu þeirra mála. 
Ég vona auðvitað að sem flestir sjái sér fært að mæta en sérstaklega væri þó gaman að sjá þau sem eru nýliðar í sóknarnefndum. Komið endilega með allar ykkar spurningar og dembið þeim yfir þá sem eiga að hafa svörin. 
Leiðbeinendur á þessu námskeði verða sr. Halldór Reynisson og Anna Guðmunda Yngvarsdóttir lögfræðingur á biskupsstofu.

Axel Árnason Njarðvík, 14/11 2009

Sameining samþykkt á Kirkjuþingi 2009

Sjá margþætta sameiningu á prestaköllum og prófastsdæmum á Suðurlandi. Lesið frétt á kirkjan.is

Axel Árnason Njarðvík, 14/11 2009

Haldið var upp á 100 ára vígsluafmæli Stóra-Núpskirkju

Haldið var upp á afmælið 1. nóvember 2009 en vígsludagur kirkjunnar var 31. október 1909. Dagskráin hófst á því að Guðmundur Rafn Sigurðsson, umsjónarmaður kirkjugarða lýsti þeim framkvæmdum sem lokið er við, í nokkrum orðum. Hann lauk ræðu sinni með því að afhenda formanni sóknarnefndarinnar eitt lítið grasblað sem tekið var úr garðinum. Var það skírskotun í þá vitund að „allt hold er gras og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.“ Guðsþjónustan hófst síðan kl. 14 eftir að vígslubiskupinn í Skálholti hafði opnað kirkjunni nýja útgáfu að Biblíunni. Þessi Biblía var keypt fyrir minningargjöf Kristjáns Guðmundssonar á Minna-Núpi um konu sína Margréti Ámundadóttur. Sóknarpresturinn þjónaði síðan fyrir altari. Sungir voru sálmar frá því fyrir 100 árum er kirkjan var vígð. Það er skemmtilegt til þess að hugsa að kirkjan á Stóra-Núpi, ásamt Hrepphólakirkju eiga sér röð vígslusálma. Biskup Íslands prédikaði og fyrrverandi sóknarprestar hér lásu ritningalestra og prófasturinn aðstoðaði við útdeilingu. Jóhanna Höeg Sigurðardóttir lék á þverflautu, Magnea Gunnarsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir sungur undir forspili Ave Maria, Söngfélag Stóra-Núpskirkju leiddi söng og Þorbjörg Jóhannsdóttir var organisti.

Í Árnesi hófst síðan hátíðardagskrá að lokinni messu þar sem stuttar ræður haldnar. Þessi tóku til máls: Guðfinnur Jakobsson sóknarnefndarformaður, sr. Axel Árnason Njarðvík það var fyrir 100 árum…, sr. Sigðurður Sigurðarson, vígslubiskup um Stóra-Núp og vígslubiskupsembættið, Katrín Briem, Erlingur Loftsson, Jóhannes Gunnarsson sonur sr. Gunnars í Skarði , sr. Bernharður Guðmundsson, Oddur Bjarnason, sr. Sigfinnur Þorleifsson fluttu stutt minningarbrot. Skólabörn sungu tvö lög undir stjórn Stefáns Þorleifsson. Magnea Gunnarsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir sungu heilræðavísur Hallgríms Péturssonar. Söngkveðja frá Söngskóla Sigurðar Demetz, þau Kristján Jóhannsson og Signý Sæmundsdóttir sungu við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.

Kirkjunni bárust þjár gjafir við þessi tímamót. Jóhanna Jóhannsdóttir í Haga færði kirkjunni kr. 250.000. Brottfluttir Búrfellingar og Landsvirkjun færðu kirkjunni útilýsingu og Kvennfélag Gnúpverja færðu kirkjunni blómavasa til nota á altari kirkjunnar.

Í lokin var öllum afhentar kirkjubjalla Stóra-Núpsprestakalls. Bjallan er með myndir af báðum kirkjum prestakallsins og er til að minna okkur á að landið og þjóðin nýtur blessunar. Frá fyrstu tíð hafa bjöllur fylgt byggð á Íslandi eins og Ari fróði benti á í Íslendingabók sinni. Þessi bjalla minnir ennfremur á, að árið 2009 er Stóra-Núpskirkja 100 ára og Ólafvallakirkja 112 ára. Sannkristilegt líf er ekki aðeins líf hinna einstöku í samfélagi við Guð, heldur líka í samfélagi hver við anna. Því eru söfnuðir myndaðir og kirkjur reistar til sameininlegrar guðsþjónustu. „Sjá, þetta er tjaldbúð Guðs meðal manna“, sagði röddinn, sem postulinn heyrði í vitrun sinni. Það eiga kirkjurnar einnig að vera.

Staka tréð á milli kirknanna minnir okkur á lífsins tré, sem teygir sig mót sólu og himni. Allaufgað tré er gjarnan tákn hins réttláta lífs, lífsins í Guði. Þetta minnir jólatréð okkar okkur líka á. Trén þrjú milli kirknanna er tilvísun: tré stúlkna, drengja og ófæddu barnanna.

Önnur hliðin

Önnur hliðin

Hin hliðin
Hin hliðin

Öll sóknarbörn sem ekki voru á afmælishátíðinni munu og fá svona bjöllu afhenda á næstu dögum.

Enn fremur verður hægt að kaupa fleiri slíkar bjöllur og hægt er að nálgast þær hjá sóknarpresti, Helgu í Tröð og Guðjóni á Húsatófum. Hver þeirra kostar kr. 1500.

100 ára vígsluafmælið tókst vel og fólk átti ánægjuríkan dag og eftirminnilegan.Öllum þeim sem að verki komu, er þökkuð liðveislan.

Axel Árnason Njarðvík, 10/11 2009

Stóra-Núpskirkja 100 ára

Á þessu ári verða hundrað ár liðin frá því að Stóra-Núpskirkja var vígð. Hún var vígð sunnudaginn 31. október 1909. Sunnudaginn 1. nóvember 2009 kl. 14:00 verður því kirkjudagur Stóra-Núpskirkju haldinn. Tilefnið er 100 ára afmæli kirkjunnar. Biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson predíkar. Dagskrá hefst síðan í Árnesi að lokinni messu. Það munu ma. skólabörn syngja og ræður í tilefni dagis verða fluttar. Takið daginn frá og takið þátt í hátíðardagskránni.

Það var árið 1908 í miklu óveðri milli jóla og nýjárs að báðar kirkjunnar í Stóra-Núpsprestakalli fuku. Hrepphólakirkja fauk upp á móti brekku og sumt úr henni upp á brekkuna. Núpskirkja kastaðist  -líklega í heilu lagi- niður fyrir brekkuna og brotnaði í spón. 

Predíkunarstóllinn á Stóra-Núpi mun hafa endað í Villingarholtskirkju og er hann þar enn. Orgelið úr kirkjunni fauk einnig, er til enn þann dag í dag. Kirkjan lagði til járnplötur sínar handa náunganum á næsta bæ sem bæta þurti hlöðu sína eftir rokið.

Hin nýja kirkja sem reis á Stóra-Núpi var teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni, húsameistari, Gestur Einarsson Hæli var umsjónarmaður smíðinnar, Bjarni Jónsson yfirsmiður (síðar bíóstjóri Nýja bíós). Kirkjan og allir innviðir hennar og áhöld bera vitni um stórhug og listfengi þeirra sem stóðu að kirkjusmíðinni í byrjun 20. aldar. Hún er prýdd merkum útskurði eftir Stefán Eiríksson og máluð innan samkvæmt fyrirmælum Ásgríms Jónssonar, sem einnig málaði stóra altaristöflu.

Minnismerki var reist 4. september 1988 um hr. Valdimar Briem, víglubiskups og skáld gerður af Helga Gíslasyni. Nýtt orgel var fært kirkjunni á 80 ára afmæli hennar, gert af Björvini Tómassyni, orgelsmið.

Í kirkjunni er að finna tvær eldri altaristöflur. Önnur er frá Steinsholti þar sem sat m.a. sr. Daði Halldórsson. Hin gefin af frú Sigríði Jónsdóttur, ekkju hr. Jóns Vídalín biskups Annó 1728. 

Sóknarprestur og sóknarnefnd.

Axel Árnason Njarðvík, 15/10 2009

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS