Að beiðni Kirkjuráðs er boðað til aukahéraðsfundar þann 20. október 2009 kl. 19:00 á Hótel Heklu á Skeiðum.
Verkefni fundarins er að kynna tillögur biskupafundar að sameiningu prestakalla í uppsveitum Árnessýslu , þ.e.Hruna og Stóra- Núps og Skálholts og Mosfells og tillögu þess efnis að Þingvallaprestakall verði lagt niður og Þingvallasókn sameinuð Miðdalssókn.
Prófastur vekur athygli á því að vegna hins skamma fyrirvara sem gefinn er þá eru fyrirmæli starfsreglna um löglega boðun fundarins ekki uppfyllt.
Fundurinn var auglýstur í héraðsblöðum þann 8. okt sl.
Ég vona samt að við hjálpumst að við að koma boðum til þeirra er láta sig málið varða.
með góðri kveðju.
Eiríkur Jóhannsson
Axel Árnason Njarðvík, 15/10 2009
Þann 9. október 1909 var Hrepphólakirkja í Hrunaprestakalli vígð. Senn eru liðinn 100 ár og af því tilefni verður efnt til hátíðarhalda sunnudaginn 11. október. Að lokinni hátíðarmessu þar sem vígslubiskup Skálholtsstiftis mun prédika verður flutt dagskrá í tali og tónum þar sem stiklað verður á stóru í sögu kirkjunnar og þess sem henni tengist. Það er von sóknarnefndar og prests að sjá sem flesta af velunnurum kirkjunnar fjær og nær þennan dag.
Axel Árnason Njarðvík, 11/10 2009
Tvennir tónleikar verða haldnir sunnudaginn 27. september nk. Kl. 16:00 í Eyrarbakkakirkju og kl. 20:30 í Stóra-Núpskirkju.
Þá flytja þau Gerður Bolladóttir, sópran, Hilmar Örn Agnarsson, orgel og Victoría Tarevskaia, selló, sálma sr. Matthíasar Jochumssonar í gömlum og nýjum útsetningum ásamt trúarlegum verkum eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Georg Friedrich Handel og Johann Sebastian Bach.
Tilvalið að ganga þar inn í bjartsýni trúar og vonar í tak við ljúfa himneska tóna. Engin er aðgangseyririnn.
Axel Árnason Njarðvík, 21/9 2009
Guðsþjónusta verður í Stóra-Núpskirkju sunnudaginn 20. september kl. 14. Í guðspjalli þess sunnudags verður lagt út af orðum Jesú er hann sagði: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.”
Axel Árnason Njarðvík, 17/9 2009
Tvær guðsþjónustur verða á sunnudaginn 6. september.
Sú fyrri verður í Hrepphólakirkju kl. 11 en þá hefjast fermingarstörfin. Fermingarbörn og foreldrar eru sérstaklega beðin að koma út að Hrepphólum.
Guðsþjónusta verður síðan í Ólafsvallakirkju á Skeiðum, kl. 14.00.
Allir alltaf hjartanlega velkomnir.
Síðan verður næst messað á Stóra-Núpi sunnudaginn 20. september kl. 14:00
Axel Árnason Njarðvík, 3/9 2009
Sunnudaginn 23. ágúst kl. 14:00 verður guðsþjónusta í Keldnakirkju.

Guðbjörg Arnardóttir, 23/8 2009

Útimessa við Miklafell
Útimessa verður rétt hjá Hólaskjóli í Lambaskarðshólum sunnudaginn 16. ágúst 2009 kl. 14.00. Séra Ingólfur Hartvigsson þjónar fyrir altari og Gunnar Einar Steingrímsson, djákni prédikar. Mæting er við Hólaskjól kl. 13.45. Eftir messu verður boðið upp á kaffi í Hólaskjóli.Fjölmennum til messunnar og njótum þess að eiga notalega stund saman umvafin náttúrufegurð Íslands.
Ingólfur Hartvigsson, 13/8 2009
Guðsþjónusta var haldin í Ólafsvallakirkju á Skeiðum, sunnudaginn 16. ágúst kl. 14.00.
Reinhard Halsmayr, fiðlukennari við Tónlistarháskóla Vínarborgar spilaði á fiðluna sína í guðsþjónustunni. Reinhard spilaði í Stóra-Núpskirkju sumarið 2006 með stórkostlegum og eftirminnilegum hætti þar sem hann tjáði aðdáun sína á náttúru landsins og endurspeglaði upplifun sína á Íslandi.

Axel Árnason Njarðvík, 13/8 2009

Þá er tónleikaröðin Sumar í Odda hafin. Það er Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna sem skipuleggur og hefur umsjón með tónleikunum. Tónleikaröðin hófst með þann 30. júlí. Þá sungu og spiluðu við góðar undirtektir Jóhann Stefánsson, Margrét Stefánsdóttir og Hilmar Örn Agnarsson. Var vel mætt á tónleikana og þóttu þeir vel heppaðir. Framundan er ekki síðri skemmtun og er dagskráin á þessa leið.
6. ágúst. Oddakirkja kl. 20:00.
Sönghópurinn VoxFox.
20. ágúst. Oddakirkja kl. 18:00.
Dúó Stemma, fjölskyldudagskrá.
27. ágúst. Safnaðarheimilið á Hellu kl. 20:00.
Stúlknakórinn Hekla ásamt hljómsveit.
4. sept. Oddakirkja kl. 20:00.
Óli Stolz og félagar.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1000 krónur og innifalið í verðinu er hið margrómaða kirkjukórsbakkelsi að tónleikunum loknum.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Guðbjörg Arnardóttir, 4/8 2009
Guðsþjónusta verður um verslunarmannahelgina í bænhúsinu að Núpsstað í Skaftárhreppi sunnudaginn 2. ágúst nk. og hefst kl. 14:00.
Séra Ingólfur Hartvigsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Kristján Gissurarson frá Eiðum leikur á orgel.
Félagar úr kór Prestsbakkakirkju leiða söng.
Hestamenn eru hvattir til þess að koma ríðandi til messu. Farin verður hópreið frá Kálfafelli í Fljótshverfi og lagt af stað þaðan kl. 12.30.
Fjölmennum til guðsþjónustunnar og eigum þar notalega stund.
Séra Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur.
Ingólfur Hartvigsson, 28/7 2009