Tónleikar og Þorlákstíðir á Þorláksmessu að sumri mánudaginn 20. júlí 2009
Sönghópurinn Voces Thules verður með tónleika í Þykkvabæjarklausturskirkju í Álftaveri kl. 19.00. Miðaverð er 1.500 krónur. Miðasala verður við innganginn.
Kaffisala verður eftir tónleikanna hjá kvenfélaginu Framtíðinni í Álftaveri og kvenfélagi Hvammshrepps í þjónustuhúsi kirkjunnar. Allur ágóði af tónleikunum og kaffisölunni rennur til kaupa á augnlækningatækjum fyrir heilsugæslustöðina í Vík.
Helgistund verður kl. 21.00 þar sem Voces Thules syngur úr Þorlákstíðum. Séra Árni Svanur Daníelsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Ingólfi Hartvigssyni.
Ingólfur Hartvigsson, 20/7 2009
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar.
Organisti er Ester Ólafsdóttir
Ritningarlestra les Valgeir Fridolf Backman
Lokabæn flytur Úlfhildur Stefánsdóttir
Meðhjálparar eru Ólöf Erla Guðmundsdóttir og
Erla Thomsen
Almennur safnaðarsöngur
Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum
Birgir Thomsen, 10/7 2009
Sunnudaginn 5. júlí kl. 14:00 verður hátíðarguðsþjónusta í Sólheimakirkju í tilefni af 4ra ára afmælis kirkjunnar og 79 ára afmælis Sólheima
Forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein prédikar
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari
Ritningarlestra les Guðmundur Ármann Pétursson
Ellen Kristjánsdóttir syngur einsöng við undirleik Esterar Ólafsdóttur organista
Almennur safnaðarsöngur
Meðhjálparar eru þau Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen
Veið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum
Birgir Thomsen, 2/7 2009
Barn borið til skírnar
Prestur, sr. Birgir Thomsen
Organisti, Ester Ólafsdóttir
Almennur safnaðarsöngur
Meðhjálparar eru Ólöf Erla Guðmundsdóttir og Erla Thomsen
Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum
Birgir Thomsen, 26/6 2009
Kvöldguðsþjónusta, sunnudaginn 21. júní, kl. 21.00Sóknarbörn og gestir þeirra eru þetta kvöld, hvött til að leggja á fáka sína að gömlum og góðum sið og koma ríðandi til kirkju. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti að athöfn lokinni.
Halldóra Þorvarðardóttir, 16/6 2009
Guðsþjónusta verður í Stóra-Núpskirkju sunnudaginn 14. júní kl. 14. Í guðspjalli þess sunnudags verður lagt út af orðum Jesú er hann sagði: „Gætið ykkar og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af sínum þótt auðugur sé.”
Axel Árnason Njarðvík, 11/6 2009
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00 í Langholtskirkju í Meðallandi og síðan róðrakeppni kl. 16.00 við Hæðargarðsvatn. Lið frá gömlu hreppunum, Hörgslandshreppi, Kirkjubæjarhreppi, Leiðvallarhreppi, Skaftártunguhreppi og Álftavershreppi ætla að etja kappi saman og róa hringinn um Hæðargarðsvatn. Og til þess að hækka blóðþrýstingin enn meira þá er Mýrdælingum boðið að vera með.
Veitingasala verður í höndum Kvenfélags Kirkjubæjarhrepps.
Höldum upp á sjómannadaginn með því að mæta með góða skapið og hvetja okkar lið.
Ingólfur Hartvigsson, 3/6 2009
Hátíðarmessa og ferming á hvítasunnudag 31. maí kl. 14.00
Fermdur verður Arnar Tómas Birgisson, Langholti.
Ásakórinn leiðir söng undir stjórn Brian Rogers Haroldssonar organista.
Ingólfur Hartvigsson, 30/5 2009
Guðsþjónusta kl. 14:00
Sólheimakórinn syngur nokkur lög undir stjórn Vigdísar Garðarsdóttur
Organisti er Ester Ólafsdóttir
Almennur safnaðarsöngur
Meðhjálparar eru Erla Thomsen og Eyþór Jóhannsson
Birgir Thomsen, 28/5 2009
Kvöldguðsþjónusta í Marteinstungukirkju á annan í hvítasunnu, 1. júní kl. 20.30
Halldóra Þorvarðardóttir, 27/5 2009