Suðurland

 

Víkurprestakall

Kirkjuskólinn í Vík Minni á samveru kirkjuskólans í Víkurprestakalli, sem verður í Víkurskóla, næsta laugardag á venjulegum tíma. -Sóknarprestur

Skaftfellingamessa í Reykjavík Skaftfellingamessa verður í Breiðholtskirkju í Reykjavík næsta sunnudag, 18. mars 2012 kl. 14:00. Allir sem erindi eiga í höfuðborgina þennan dag hvattir til að mæta. -Sóknarprestur

Axel Árnason Njarðvík, 12/3 2012

Héraðsfundarboð

Prófastur boðar til héraðsfundar Suðurprófastsdæmis árið 2012 og verður haldinn að Þingborg í Árnessýslu, laugardaginn 24. mars nk. og hefst kl. 11.00 með helgistund í Hraungerðiskirkju.

Á héraðsfund mæta þjónandi prestar í prófastsdæminu, djákni, tveir sóknarnefndarmenn, þar af annar formaður og kirkjuþingsmenn. Auk þeirra eiga rétt á setu á fundinum aðrir sóknarnefndarmenn og starfsmenn kirknanna með málfrelsi og tillögurétt.

Eru formenn vinsamlegast beðnir um að boða öðrum fundinn innan sinnar sóknarnefndar.

Dagskrá héraðsfundar 24. mars 2012.

1. Helgistund í Hraungerðiskirkju í umsjá sr. Kristins Á.
Friðfinnssonar.
2. Yfirlitsskýrsla prófasts.
3. Ársreikningur héraðssjóðs 2011 og fjárhagsáætlun 2012.
4. Starfsskýrslur sókna, nefnda og héraðsprests lagðar fram svo og
ársreikningar sókna og kirkjugarða.
5. Kirkjuþingsmál.
6. Samþykktir Prestastefnu og Leikmannastefnu kynntar.
7. Erindi frá Biskupsstofu - Að starfa í sóknarnefnd.
8. Kosningar.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.

Axel Árnason Njarðvík, 8/3 2012

Kirkjuskóli Mosfellsprestakalls

Svipmynd úr kirkjuskólanum

Svipmynd úr kirkjuskólanum

Verður í Sólheimakirkju laugardaginn 10. mars kl. 13:00.
Söngur, sögur, föndur og gleði. Kaffi, ávaxtasafi og kalóríur í anddyri kirkjunnar eftir stundina.
Við munum svo vera með kirkjuskólann laugardagana og 31. mars kl. 13:00. Þann dag munum við rifja upp sögurnar um innreið Jesú í Jerúsalem á Pálmasunnudegi og hvað gerðist á Páskum.
Sameiginleg lokastund kirkjuskóla uppsveita Árnessýslu verður í Skálholtsdómkirkju sunnudaginn 15. apríl kl. 11:00. Verið öll hjartanlega velkomin

Axel Árnason Njarðvík, 7/3 2012

Þingvallakirkja

Messað er kl. 14 sunnudaginn 11. mars. Prestur sr. Axel Á Njarðvík, héraðsprestur. Fermingarbörn Þingvallaprestakalls og Mosfellsprestakalls sérstaklega boðuð þar sem fræðslustund um messuna verður fyrir þau fyrir messuna og hefst hún kl. 13. Allir velkomnir.

Axel Árnason Njarðvík, 6/3 2012

Úr Víkurprestakalli

Ásólfsskálakirkja undir Eyjafjöllum. Guðsþjónusta verður í Ásólfsskálakirkju nk. sunnudag, 11. mars kl. 14:00.
Guðjón Halldór Óskarsson leikur á orgel og stjórnar Kór Eyfellinga, sem syngur við guðsþjónustuna. -Eyfellingar fjölmennið til kirkju.

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal. Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju nk. sunnudag, 11. mars kl. 16:00. Ath. breytta tímasetningu. Kári Gestsson leikur á orgelið og stjórnar Samkór Mýrdælinga sem syngur við guðsþjónustuna. Mýrdælingar og gestir þeirra, fjölmennið til kirkju.

Kirkjuskólinn í Víkurprestakalli. Minnum á samveru Kirkjuskólans í Vík næsta laugardag, 10. mars kl. 11:15-12:00. í grunnskólanum í Vík. -Hlökkum til að hitta ykkur. Halli og Gulla

Axel Árnason Njarðvík, 6/3 2012

Kirkjustarf í Víkurprestakalli

Víkurkirkja í Mýrdal - Æskulýðsdagurinn. Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar,
nk. sunnudag, 4. mars 2012, kl. 14:00. Léttir söngvar við allra hæfi. Ungmenni prestakallsins (á öllum aldri), hvött til að fjölmenna. -Sóknarprestur

Hjallatún í Vík. Helgistund verður á Hjallatúni nk. sunnudag, 4. mars 2012, kl. 15:00. -Sóknarprestur

Kirkjuskólinn í Víkurprestakalli. Minni á samveru kirkjuskólans sem verður í Víkurskóla í Vík, næsta laugardag, 3. mars, kl. 11:15 - 12:00. -Sóknarprestur

Axel Árnason Njarðvík, 27/2 2012

Helgihald helgarinnar í Oddaprestakalli

Barna- og fjölskylduguðsþjónustaVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3903

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu sunnudaginn 4.mars kl. 11:00. Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.

Guðsþjónusta í ÞykkvabæjarkirkjuVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/3904

Guðsþjónusta í léttum dúr á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar í Þykkvabæjarkirkju sunnudaginn 4. mars kl. 14:00. Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.

Guðbjörg Arnardóttir, 27/2 2012

Kynningarfundur í Suðurprófastsdæmi vegna væntanlegs kjörs biskups Íslands

Kynningarfundur í Suðurprófastsdæmi vegna væntanlegs kjörs biskups Íslands verður haldinn safnaðarheimili Selfosskirkju, mánudagskvöldið 5. mars nk. og hefst kl. 20.00.

Á fundinn eru  formlega boðaðir allir kjörmenn í Suðurprófastsdæmi skv. Kjörskrá, þ.e. þjónandi prestar í prófastsdæminu, formenn sóknarnefnda og kirkjuþingsfulltrúar. Fundurinn er þó öllu kirkjufólki opinn og eru formenn sóknarnefnda hvattir til að greina meðsóknarnefndarfólki frá honum.

Dagskrá fundarins verður með því móti, að frambjóðendur munu flytja stutta kynningu á sér og málefnum sínum. Að því búnu verður boðið upp á fyrirspurnir. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi ekki lengur en í tvo og hálfan tíma. Ekki þarf að tilkynna þátttöku sérstaklega. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Vakin er athygli á að fyrirhugað er að taka fyrsta kynningarfund frambjóðendanna, í Reykjavík, upp á myndband og birta á vef kirkjunnar í framhaldinu fyrir þá sem ekki komast á þennan boðaða kynningarfund á Selfossi.

Til að auðvelda kjósendum að kynna sér frambjóðendur hefur Kirkjuráð ákveðið að gert verði 10 - 15 mín kynningarmyndband um hvern biskupsframbjóðanda og þau birt á vef kirkjunnar og auðveldar það vonandi kjósendum að kynna sér frambjóðendur og málefni þeirra. Auk þess verður sendur bæklingur um frambjóðendur til kjörmanna.

Með góðri kveðju, Halldóra J. Þorvarðardóttir, Prófastur

Axel Árnason Njarðvík, 21/2 2012

Safnaðarstarf í Víkurprestakalli

Reyniskirkja í Mýrdal Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju nk. sunnudag, 26. febrúar, kl. 14:00.
Organisti er Kristín Björnsdóttir sem leiðir almennan safnaðarsöng. Fjölmennum. -Sóknarprestur

Stóra Dalskirkja undir Eyjafjöllum Guðsþjónusta verður í Stóra Dalskirkju nk. sunnudag, 26. febrúar, kl. 16:00. Kór Eyfellinga syngur undir stjórn Guðjóns Halldórs Óskarssonar organista. Fjölmennum. - Sóknarprestur

Kirkjuskólinn í Víkurprestakalli Minni á samveru kirkjuskólans í Víkurskóla í Mýrdal, næsta laugardag, 25. febrúar kl. 11:15-12:00. -Sóknarprestur

Axel Árnason Njarðvík, 21/2 2012

Guðsþjónusta í Búrfellskirkju

Guðsþjónusta verður í Búrfellskirkju kl. 14 sunnudaginn 19. febrúar. Sr. Axel Á Njarðvík þjónar fyrir altari.

Axel Árnason Njarðvík, 15/2 2012

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS