Suðurland

 

Föstumessur í Mosfellskirkju

Föstumessur verða í Mosfellskirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20:30. Fyrsta föstumessa í ár verður 22. febrúar. Dr. Arngrímur Jónsson predíkar.

Föstumessurnar verða síðan alla miðvikudaga á föstunni, en þeir eru 29. febrúar, 7. mars, 14. mars, 21. mars og 28. mars.

Axel Árnason Njarðvík, 15/2 2012

Héraðsfundur Suðurprófastsdæmis 2012

Prófstur boðar til héraðsfundar Suðurprófastsdæmis og verður hann haldinn á Þingborg, laugardaginn 24. mars nk. og hefst kl. 11.00.

Fundargerðir fyrri héraðsfunda er að finna hér.

Axel Árnason Njarðvík, 15/2 2012

Kirkjuskólinn í Vík

Minnum á samveru kirkjuskólans í Víkurprestakalli,
í Víkurskóla næsta laugardag, 19. febrúar, kl. 11:15-12:00.
Hafdís og Klemmi og fleira skemmtilegt. -Halli og Gulla

Axel Árnason Njarðvík, 13/2 2012

Biblíudagurinn

Í bæ heilags Þorláks!

Biblíusýning, messa og sunnudagskóli

Sýning á Biblíusafni Höllu Kjartansdóttur verður í Þorlákskirkju sunnudaginn 12. Febrúar og stendur frá 13- 17 (eitt til fimm) en fólk getur einnig skoðað sýninguna í upphafi og endi sunnudagaskólans sem byrjar kl. 11:00.

Kl. 14 verður messa helguð Biblíunni sem hefur verið gefin út í viðlíka magni og stjörnur vetrarbrautarinnar eru á nær öllum tungumálum veraldar sérstaklega undanfarin 500 ár  eftir að menn fóru að þýða bókina á hinar aðskiljanlegustu tungur og föttuðu hvernig ætti að prenta og þar með fjöldaframleiða bækur.

Halla, sem hefur verið kirkjuvörður og meðhjálpari í Þorlákskirkju og er frá Suður- Hvammi í Mýrdal og syngur í kór Þorlákskirkju og er gift Erlendi Jónssyni hafnarverði, hefur safnað Biblíum um árabil.  Safn hennar er yfirgripsmikið og gefur dálitla innsýn í marbrotna biblíuflóru veraldarinnar.

Ástæða er til að hvetja sunnlendinga til að renna í höfnina og skoða hið merka safn. Í messuni predíkar séra Baldur stuttlega en Halla fjallar um hinar ýmsu útgáfur Biblíunnar, Hannes spilar á orgelið og kórinn syngur sálma við hæfi.

Aðgangur er ókeypis og langt aðkomnum er boðið upp á kaffi/kakó og konfekt. Heimamenn fá líka.

Baldur Kristjánsson, 10/2 2012

Kirkjuskólinn í Vík og Víkurkirkja í Mýrdal

Minnum á samveru Kirkjuskólans í Vík í Víkurskóla, næsta laugardag þann 4. febrúar 2012 kl. 11:15-12:00.
Hlökkum til að hitta ykkur eftir langt hlé. -Halli og Gulla

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju á Biblíudeginum nk. sunnudag, 12. febrúar, kl. 11:00. Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista. Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til að mæta.
Athugið breyttan tíma. -Sóknarprestur

Axel Árnason Njarðvík, 6/2 2012

Kirkjuskóli Mosfellsprestakalls í Sólheimakirkju

Blik úr barnastarfi

Blik úr barnastarfi

Kirkjuskóli Mosfellsprestakalls verður haldinn í samstarfi við Sólheima og hefst laugardaginn 11. febrúar kl. 13:00 í Sólheimakirkju. Hann varir í um klukkutíma í senn. Söngur, sögur, föndur og gleði. Kaffi, ávaxtasafi og kalóríur í anddyri kirkjunnar eftir stundina.

Við munum svo vera með kirkjuskólann í Sólheimakirkju laugardagana 25. febrúar, 10. mars og 31. mars kl. 13:00.
Sameiginleg lokastund kirkjuskóla uppsveita Árnessýslu verður í Skálholtsdómkirkju sunnudaginn 15. apríl kl. 11:00.
Verið öll hjartanlega velkomin öllum stundum.

Þau ykkar sem spila á píanó eða gítar eru sérstaklega boðin til samstarfs um tónlistaflutninginn og spil undir söng. Hafið samband við sr. Axel í síma 856 1574 eða sr. Birgi í síma 893 8983.

Axel Árnason Njarðvík, 6/2 2012

Helgihald í Oddaprestakalli sunnudaginn 5. febrúar

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu kl. 11:00.  Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.

Guðsþjónusta í Oddakirkju kl. 14:00.  Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.

Guðbjörg Arnardóttir, 3/2 2012

Guðsþjónusta í Miðdalskirkju

Sunnudaginn 5. febrúar nk. kl. 14:00 verður guðsþjónusta í Miðdalskirkju nærri Laugarvatni. Prestur er sr. Axel Á Njarðvík. Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til að koma til kirkjunnar. Allir velkomnir.

Axel Árnason Njarðvík, 1/2 2012

Helgihald í Oddaprestakalli sunnudaginn 29. janúar 2012

Þykkvabæjarkirkja:  Guðsþjónusta kl. 11:00.

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu:  Helgistund kl. 14:00.

Guðbjörg Arnardóttir, 24/1 2012

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju nk. sunnudag, 29. janúar, kl. 14.00. Samkór Mýrdælinga syngur
undir stjórn Kára Gestssonar organista. Fjölmennum. -Sóknarprestur

Axel Árnason Njarðvík, 23/1 2012

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS