Guðsþjónustur og Kirkjuskóli í Mýrdal á Kristniboðsdeginum
Haraldur Kristjánsson, 8/11 2010
Haraldur Kristjánsson, 8/11 2010
Haraldur Kristjánsson, 4/11 2010
Þorlákskirkja. Messa kl. 14:00 Kór Þorlákskirkju. Organisti Hannes Baldursson. Prestur Baldur Kristjánsson. Vænst er þáttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Kakó og konfekt eftir messu.
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Hafdís Þorgilsdóttur laðar fram furðuskepnur og Hannes Baldursson spilar undir söng. Leikið, litað og lesið. Sóknarprestur.
Frá Þorlákskirkju. Mynd BK
Baldur Kristjánsson, 29/10 2010
Hin árlega veiðimannamessa verður í Strandarkirkju sunnudaginn 17. október kl. 14:00. Í guðsþjónustu fjölmenna veiðimenn í Hlíðarvatni og allir eru að sjálfsögðu velkomnir eins og alltaf. Organisti Hannes Baldursson. Kór Þorlákskirkju syngur. BK
Baldur Kristjánsson, 13/10 2010
Sunnudagaskóli verður í Þorlákskirkju 17. október kl. 11:00 í umsjón Hafdísar, Hannesar og Baldurs. Allir mæti. Börn og fullorðnir.
Baldur Kristjánsson, 13/10 2010
Sunnudagur 12. september. Messa kl. 11:00. Foreldrar og fermingarbörn þeirra mæti. Í messunni og eftir hana er rætt um fyrirkomulag fermingarstarfa og fyrir messu og eftir eru þeir skráðir niður sem ætla að ganga til spurninga. Organisti í messunni verður Hannes Baldursson og kór Þorlákskirkju syngur sálma. Prestur verður séra Baldur Kristjánsson.
Sunnudagaskólinn byrjar 19. september, viku síðar.
Axel Árnason Njarðvík, 6/9 2010
Guðsþjónusta í Þykkvabæjarkirkju sunnudaginn 17. október kl. 11:00
Guðsþjónusta í Oddakirkju sunnudaginn 17. október kl. 14:00
Axel Árnason Njarðvík, 30/8 2010
Í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima og 5 ár afmæli Sólheimakirkju, verður hátíðarguðsþjónusta í Sólheimakirkju sunnudaginn 4. júlí kl. 14:00. Eftir guðsþjónustuna verða léttar veitingar í Sesseljuhúsi og kl. 16:00 verður þar frumsýnd heimildarmynd um Sesselju og Sólheima.
Guðsþjónustan kl. 14:00
Vígð verður ný altaristafla
Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur prédikar
Fyrir altari þjóna sr. Birgir Thomsen, sr. Gylfi Jónsson og sr. Valgeir Ástráðsson
Ritningarlestra les Guðmundur Ármann Pétursson
Organisti er Ester Ólafsdóttir
Óperusöngvararnir Davíð Ólafsson og Garðar Thor Cortes syngja við athöfnina
Lokabæn les Úlfhildur Stefánsdóttir
Meðhjálparar eru Ólafía E. Guðmundsdóttir, Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen
Axel Árnason Njarðvík, 29/6 2010
Guðsþjónusta verður í Strandarkirkju í Selvogi sunnudaginn 4. júlí kl. 14.00.
Þar verður vonandi fallegt veður og fínt að fara í kirkjukaffi í T-bæ, (kaffisöluna) eftir messu.
Það verður safnaðarsöngur og góðir sálmar verða á töflunni.
Organisti verður Ómar Óskarsson, ættaður úr Dölum. Prestur verður sr. Skírnir Garðarsson, ættaður frá heimskautsbaug.
Allir hjartanlega velkomnir, þetta er hæfilegur bíltúr á sunnudegi og mjög vinsælt að taka þátt.
Axel Árnason Njarðvík, 29/6 2010
Guðsþjónusta verður í Oddakirkju sunnudaginn 6. júní kl. 14. Barn fært til skírnar.
Axel Árnason Njarðvík, 31/5 2010
Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.
Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is
Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!
Fyrir 16 ára og eldri
Fyrir börn yngri en 16 ára
Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.
Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil
Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi ![]()