Nú eru liðin rúm sex ár frá því Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu var tekið í notkun og blessað. Þar fór Safnaðarstarf sóknarinnar að mestu fram og kom strax í ljós að mikil eftirspurn var eftir slíku húsnæði á Hellu. Því ákvað sóknarnefnd Oddasóknar að stækka við sig og var eystri hluti húsnæðisins keyptur í ágúst 2010. Fékkst styrkur úr Kirkjumálasjóði til kaupanna. Samráð var haft við sveitarstjórn Rangárþings Ytra og Ásahrepp um hvernig nýta bæri húsið á sem hagkvæmastan hátt. Í vor var undirritaður samningur við þessi sveitarfélög að starf eldri borgara í sýslunni fái fastan samastað í húsinu fyrir handavinnu, kóræfingar og spilastundir. Einnig að ýmis menningar- og mannúðarfélög sem á svæðinu starfa fengju þar aðstöðu. Nú í ágúst var farið á fullt í að klára húsnæðið og komu að þeirri vinnu sjálfboðaliðar úr röðum sóknarnefndar og þeirra félaga sem vildu nýta húsnæðið. Sóknarnefnd gerði samning við Harmonikufélag Rangæinga, Karlakór Rangæinga, Kvenfélagið Unni, Kvennakórinn Ljósbrá, Leikfélag Rangæinga og Samkór Rangæinga sem fá aðgang að húsnæði gegn því að koma að þrifum og að halda árlega styrktarsamkomu fyrir húsnæðið og starfsemina. Þá hefur Rauði krossinn styrkt aðstöðuna en vikulega eru á hans vegum haldnir prjónafundir í húsinu. Í millibyggingu hússins verður skrifstofa sóknarprests og prófast Suðurprófastdæmis. Nú er starfsemin í húsinu að fullu hafin og talar dagskrá þess sínu máli, þar sem alla daga vikunnar er eitthvað um að vera bæði yfir miðjan daginn sem og á kvöldin. Það hefur verið gaman og merkilegt að fylgjast með þessari uppbyggingu, að sjá líf færast yfir húsið, finna kaffiilminn leggja frá því og taka á móti gestum og gangandi. Húsnæðið mun án efa efla og styrkja menningarlíf á staðnum sem og að efla samstöðu og kærleika með okkur manneskjunum sem hér störfum og búum. Vill sóknarnefnd koma á framfæri þökkum til allra sem hafa stutt húsnæðið með gjöfum, vinnu og ekki hvað síst hvatningarorðum um ágæti þess sem unnið er að og byggt upp.

Guðbjörg Arnardóttir, 23/9 2011
Guðsþjónusta sunnudag 25. september kl. 14:00
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar
Ester Ólafsdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng
Meðhjálparar eru þau Ólafía Erla Guðmundsdóttir, Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen
Kaffihúsið Græna kannan er opið milli kl. 14 og 17
Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum
Birgir Thomsen, 23/9 2011
Húsblessun á nýjum hluta Safnaðarheimilis Oddasóknar á Hellu kl. 20:00
Kirkjór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.
Húsnæðið verður til sýnis að athöfn lokinni.
Guðbjörg Arnardóttir, 13/9 2011
Guðsþjónsta verður sunnudaginn 18. september kl. 11. Settur sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Axel Árnason Njarðvík, 12/9 2011
Guðsþjónusta verður í Keldnakirkju á Rangárvöllum sunnudaginn 21. ágúst kl. 14:00.
Guðbjörg Arnardóttir, 16/8 2011
Sunnudaginn 31. júlí kl. 14 var guðsþjónusta í gömlu torfkirkjunni á Núpsstað. Það hefur verið árviss atburður um Verslunarmannahelgina að messað sé í kirkjunni. Fjöldi fólks hefur lagt land undir fót, bæði heimamenn og ferðalangar. Söfnuðurinn situr nærri kirkjunni, undir skýjum himinsins og tekur undir söng og svör.
Prestur var sr. Axel Árnason Njarðvík, héraðsprestur.
Kristján Gissurarson organist leiddi fólkið inni sem úti til sálmasöngs.

Nokkur fjöldi sótti staðinn heim og taldi amk 80 manns. Rigndi reyndar austan og vestan, sunnan og norðan við staðinn fyrir helgihaldið en er fólkið tók sig til við helgihaldið stytti upp og varð hinn blíði andvar.
Axel Árnason Njarðvík, 27/7 2011
Kvöldstund í Kotstrandarkirkju föstudagskvöldið 15. júlí kl. 20:00.

Tónlist - Fróðleikur - Helgistund í umsjón sóknarprests.
Kotstrandarkirkja í Ölfusi er fagurt guðshús í alfaraleið, miðja vega milli Hveragerðis og Selfoss, sem fjölmargir vegfarendur dást að, en færri hafa séð eða heimsótt.
“Kirkjan við veginn” býður vegfarendum tækifæri til að þess að staldra við á leið sinni, þiggja fræðslu um kirkjuna, njóta tónlistar og taka þátt í aðgengilegu helgihaldi.
Axel Árnason Njarðvík, 14/7 2011
Fimmtudaginn 7. júlí kl. 20:00 hefst tónleikaröðin Sumar í Odda. En það er Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna sem stendur fyrir tónleikaröðinn sem nú er haldin í sjöunda sinn og er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Það er tríó Oddgeir sem flytur lög Oddgeirs Kristjánssonar úr Eyjum, tríóið skipa Jón Gunnar Biering Margeirsson gítarleikari, Ingólfur Magnússon bassaleikari og Hafsteinn Þórólfsson söngvari. Í bland við flutninginn verður fróðleikur um lögin en Hafsteinn, sem er langafabarn Oddgeirs hefur nýlokið rannsókn, styrkta af Menningarráði Suðurlands, þar sem upphaf verka Oddgeirs og tilurð var könnuð.
Upplýsingar um næstu tónleika er að finna á heimsíðu Oddaprestakalls:
http://kirkjan.is/oddaprestakall/
Tónleikarnir byrja kl. 20:00, miðaverð er 1.500 og innifalið í því er kaffi og meðlæti að tónleikunum loknum.
Guðbjörg Arnardóttir, 6/7 2011

Sunnudaginn 3. júlí kl. 14:00
(Verði veður óhagstætt flyst athöfnin í Kotstrandarkirkju)
Sóknarprestur
Axel Árnason Njarðvík, 29/6 2011
Fræðslu- og helgistundir í júlí.
Kotstrandarkirkja í Ölfusi er fagurt guðshús í alfaraleið, miðja vega milli Hveragerðis og Selfoss, sem fjölmargir vegfarendur dást að, en færri hafa séð eða heimsótt.
“Kirkjan við veginn” býður vegfarendum tækifæri til að þess að staldra við á leið sinni, þiggja fræðslu um kirkjuna, njóta tónlistar og taka þátt í aðgengilegu helgihaldi.
Fyrstu stundirnar verða föstudaginn 1. júlí kl. 20:00 og laugardaginn 2. júlí kl. 17:00.
Sóknarprestur sér um fræðslu og leiðir helgihald.
Tónlist flytja Hulda Jónsdóttir, Ragnar Jónsson og Gyða Þ. Halldórsdóttir.
Suðurprófastsdæmi styrkir verkefnið.
Axel Árnason Njarðvík, 29/6 2011