Suðurland

 

Fundargerð héraðsfundar 2011

Fundargerð Héraðsfundar er komin á vefinn undir þessari Héraðsfundur-2011.

Axel Árnason Njarðvík, 28/6 2011

Hátíðarguðsþjónusta á uppstigningardag í Þykkvabæ

Hátíðarguðsþjónusta verður á uppstigninardag kl. 14:00 í Þykkvabæjarkirkju.
Eldri borgarar í Rangárvallasýslu og víðar boðin sérstaklega velkomin.
Hátíðarkaffi með léttum skemmtiatriðum í íþróttahúsinu að athöfn lokinni.
Félag eldri borgara skipuleggur rútuferðir sem eru erftirfarandi:
Frá Landvegamótum kl. 12:30, þaðan fer rútan á Kirkjuhvol á Hvolsvelli, Lund á Hellu og loks í Þykkvabæinn.

Guðbjörg Arnardóttir, 27/5 2011

Orgelveisla kl. 14:00 í Þorlákskirkju

Þorlákskirkja. Laugardagur 21. maí 2011.  Orgelveisla kl. 14:00.  Björgvinsorgelið kynnt. Kórarnir á ströndinni syngja undir stjórn snillinganna  Hannesar Baldurssonar og Hauks Arnarr Gíslasonar sem eru organistar. Jurg Sonderman spilar.

Aðalafundur Þorláks- og Hjallasóknar verður haldinn Þriðjudaginn 31. maí kl. 20:00 í Þorlákskirkju. M.a. verður kosinn nýr formaður sóknarinnar.

Axel Árnason Njarðvík, 16/5 2011

Fermingarmessa í Oddakirkju

Fermingarmessa í Oddakirkju sunnudaginn 8. maí kl. 11:00

Andrea Elísa Þrastardóttir, Geitasandi 3, 850 Hella

Hlynur Örn Sveinbjörnsson, Freyvangi 12, 850 Hella

Guðbjörg Arnardóttir, 4/5 2011

Helgihald í dymbilviku og um páska í Oddaprestakalli

Skírdagur

Oddakirkja

Fermingarmessa kl. 11:00.

Fermd verða:

Agnar Bjarki Garðarsson, Dynskálum 5, Hellu

Gunnar Bjarki Guðnason, Hólavangi 8, Hellu

Hafrún Hlín Sigfúsdóttir, Arnarsandi 4, Hellu

Ívar Birkisson, Freyvangi 9, Hellu

 

Föstudagurinn langi

Keldnakirkja

Lestur Passíusálma og sálmasöngur kl. 14:00

Ýmsir lesa.

 

Páskadagur

Þykkvabæjarkirkja

Hátíðarguðsþjónusta kl. 08:00.

Morgunkaffi og meðlæti í íþróttahúsinu að athöfn lokinni.

 

Oddakirkja

Hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00.

Guðbjörg Arnardóttir, 20/4 2011

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta

Laugardaginn 9. apríl verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu kl. 11:00.  Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur.

Kaffi og djús að stundinni lokinni.

Hlökkum til að sjá sem flesta enda er þetta stund fyrir alla fjölsylduna.

Guðbjörg Arnardóttir, 8/4 2011

Helgihald helgarinnar í Oddaprestakalli

Sunnudaginn 20. mars

Keldnakirkja

Guðsþjónusta kl. 15:00.  Aðalsafnaðarfundur að athöfn lokinni.

Oddakirkja

Kvöldguðsþjónusta kl. 20:00.  Fermingarbörn aðstoða við athöfnina.

Guðbjörg Arnardóttir, 15/3 2011

Vinna við stækkun safnaðarheimilis á Hellu

Safnaðarheimili Oddasóknar að Dynskálum 8 á Hellu var vígt í maí 2005, breytti það miklu fyrir safnaðarstarf í sókninni.  Í haust festi sóknin kaup á eystri hluta húsnæðisins.  Munu þar verða skrifstofur og önnur menningar- og samfélagsleg starfsemi.  Undanfarið hafa sjálfboðaliðar unnið við að taka út gólfið í húsnæði sem sett var fyrir starfsemina sem þar var áður.  Áfram verður unnið við að gera húsnæðið upp og verður í framtíðinni horft til þess að því megi breyta í kirkju.

Helgihald verður í eldri hluta Safnaðarheimilsins um helgina.

Laugardaginn 19. febrúar kl. 11:00                                                                                                             Barna- og fjölskylduguðsþjónusta.  Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur.

Sunnudaginn 20. febrúar kl. 14:00.                                                                                                   Guðsþjónusta.

 

Guðbjörg Arnardóttir, 17/2 2011

Helgihald framundan í Oddaprestakalli

Barna- og fjölskyludguðsþjónusta

Laugardaginn 29. janúar verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Safnaðarheimili Oddasóknar á Hellu kl. 11:00.  Barnakór Odda- og Þykkvabæjarkirkna syngur.

Þetta er góð samverustund fyrir alla fjölskylduna.  Djús og kaffispopi að lokinni athöfn.

Hlökkum til að sjá stóra sem smá.

Messa í Oddakirkju

Sunnudaginn 30. janúar kl. 11:00 verður messa í Oddakirkju.

Helgistund á Lundi

Sunnudaginn 30. janúar kl. 14:00 verður helgistund á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu.

Guðbjörg Arnardóttir, 26/1 2011

Þorláksprestakall um jólin!

Aðfangadagur. Aftansöngur kl. 18:00. Hátíðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar.  Organisti og stjórnandi Hannes Baldursson.

Hjallakirkja. Jóladagur kl. 14:00

Strandarkirkja 2. jóladagur kl. 14:00

Baldur Kristjánsson, 22/12 2010

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS