Suðurland

 

Sameining samþykkt á Kirkjuþingi 2009

Sjá margþætta sameiningu á prestaköllum og prófastsdæmum á Suðurlandi. Lesið frétt á kirkjan.is

Axel Árnason Njarðvík, 14/11 2009

Haldið var upp á 100 ára vígsluafmæli Stóra-Núpskirkju

Haldið var upp á afmælið 1. nóvember 2009 en vígsludagur kirkjunnar var 31. október 1909. Dagskráin hófst á því að Guðmundur Rafn Sigurðsson, umsjónarmaður kirkjugarða lýsti þeim framkvæmdum sem lokið er við, í nokkrum orðum. Hann lauk ræðu sinni með því að afhenda formanni sóknarnefndarinnar eitt lítið grasblað sem tekið var úr garðinum. Var það skírskotun í þá vitund að „allt hold er gras og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.“ Guðsþjónustan hófst síðan kl. 14 eftir að vígslubiskupinn í Skálholti hafði opnað kirkjunni nýja útgáfu að Biblíunni. Þessi Biblía var keypt fyrir minningargjöf Kristjáns Guðmundssonar á Minna-Núpi um konu sína Margréti Ámundadóttur. Sóknarpresturinn þjónaði síðan fyrir altari. Sungir voru sálmar frá því fyrir 100 árum er kirkjan var vígð. Það er skemmtilegt til þess að hugsa að kirkjan á Stóra-Núpi, ásamt Hrepphólakirkju eiga sér röð vígslusálma. Biskup Íslands prédikaði og fyrrverandi sóknarprestar hér lásu ritningalestra og prófasturinn aðstoðaði við útdeilingu. Jóhanna Höeg Sigurðardóttir lék á þverflautu, Magnea Gunnarsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir sungur undir forspili Ave Maria, Söngfélag Stóra-Núpskirkju leiddi söng og Þorbjörg Jóhannsdóttir var organisti.

Í Árnesi hófst síðan hátíðardagskrá að lokinni messu þar sem stuttar ræður haldnar. Þessi tóku til máls: Guðfinnur Jakobsson sóknarnefndarformaður, sr. Axel Árnason Njarðvík það var fyrir 100 árum…, sr. Sigðurður Sigurðarson, vígslubiskup um Stóra-Núp og vígslubiskupsembættið, Katrín Briem, Erlingur Loftsson, Jóhannes Gunnarsson sonur sr. Gunnars í Skarði , sr. Bernharður Guðmundsson, Oddur Bjarnason, sr. Sigfinnur Þorleifsson fluttu stutt minningarbrot. Skólabörn sungu tvö lög undir stjórn Stefáns Þorleifsson. Magnea Gunnarsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir sungu heilræðavísur Hallgríms Péturssonar. Söngkveðja frá Söngskóla Sigurðar Demetz, þau Kristján Jóhannsson og Signý Sæmundsdóttir sungu við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.

Kirkjunni bárust þjár gjafir við þessi tímamót. Jóhanna Jóhannsdóttir í Haga færði kirkjunni kr. 250.000. Brottfluttir Búrfellingar og Landsvirkjun færðu kirkjunni útilýsingu og Kvennfélag Gnúpverja færðu kirkjunni blómavasa til nota á altari kirkjunnar.

Í lokin var öllum afhentar kirkjubjalla Stóra-Núpsprestakalls. Bjallan er með myndir af báðum kirkjum prestakallsins og er til að minna okkur á að landið og þjóðin nýtur blessunar. Frá fyrstu tíð hafa bjöllur fylgt byggð á Íslandi eins og Ari fróði benti á í Íslendingabók sinni. Þessi bjalla minnir ennfremur á, að árið 2009 er Stóra-Núpskirkja 100 ára og Ólafvallakirkja 112 ára. Sannkristilegt líf er ekki aðeins líf hinna einstöku í samfélagi við Guð, heldur líka í samfélagi hver við anna. Því eru söfnuðir myndaðir og kirkjur reistar til sameininlegrar guðsþjónustu. „Sjá, þetta er tjaldbúð Guðs meðal manna“, sagði röddinn, sem postulinn heyrði í vitrun sinni. Það eiga kirkjurnar einnig að vera.

Staka tréð á milli kirknanna minnir okkur á lífsins tré, sem teygir sig mót sólu og himni. Allaufgað tré er gjarnan tákn hins réttláta lífs, lífsins í Guði. Þetta minnir jólatréð okkar okkur líka á. Trén þrjú milli kirknanna er tilvísun: tré stúlkna, drengja og ófæddu barnanna.

Önnur hliðin

Önnur hliðin

Hin hliðin
Hin hliðin

Öll sóknarbörn sem ekki voru á afmælishátíðinni munu og fá svona bjöllu afhenda á næstu dögum.

Enn fremur verður hægt að kaupa fleiri slíkar bjöllur og hægt er að nálgast þær hjá sóknarpresti, Helgu í Tröð og Guðjóni á Húsatófum. Hver þeirra kostar kr. 1500.

100 ára vígsluafmælið tókst vel og fólk átti ánægjuríkan dag og eftirminnilegan.Öllum þeim sem að verki komu, er þökkuð liðveislan.

Axel Árnason Njarðvík, 10/11 2009

Stóra-Núpskirkja 100 ára

Á þessu ári verða hundrað ár liðin frá því að Stóra-Núpskirkja var vígð. Hún var vígð sunnudaginn 31. október 1909. Sunnudaginn 1. nóvember 2009 kl. 14:00 verður því kirkjudagur Stóra-Núpskirkju haldinn. Tilefnið er 100 ára afmæli kirkjunnar. Biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson predíkar. Dagskrá hefst síðan í Árnesi að lokinni messu. Það munu ma. skólabörn syngja og ræður í tilefni dagis verða fluttar. Takið daginn frá og takið þátt í hátíðardagskránni.

Það var árið 1908 í miklu óveðri milli jóla og nýjárs að báðar kirkjunnar í Stóra-Núpsprestakalli fuku. Hrepphólakirkja fauk upp á móti brekku og sumt úr henni upp á brekkuna. Núpskirkja kastaðist  -líklega í heilu lagi- niður fyrir brekkuna og brotnaði í spón. 

Predíkunarstóllinn á Stóra-Núpi mun hafa endað í Villingarholtskirkju og er hann þar enn. Orgelið úr kirkjunni fauk einnig, er til enn þann dag í dag. Kirkjan lagði til járnplötur sínar handa náunganum á næsta bæ sem bæta þurti hlöðu sína eftir rokið.

Hin nýja kirkja sem reis á Stóra-Núpi var teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni, húsameistari, Gestur Einarsson Hæli var umsjónarmaður smíðinnar, Bjarni Jónsson yfirsmiður (síðar bíóstjóri Nýja bíós). Kirkjan og allir innviðir hennar og áhöld bera vitni um stórhug og listfengi þeirra sem stóðu að kirkjusmíðinni í byrjun 20. aldar. Hún er prýdd merkum útskurði eftir Stefán Eiríksson og máluð innan samkvæmt fyrirmælum Ásgríms Jónssonar, sem einnig málaði stóra altaristöflu.

Minnismerki var reist 4. september 1988 um hr. Valdimar Briem, víglubiskups og skáld gerður af Helga Gíslasyni. Nýtt orgel var fært kirkjunni á 80 ára afmæli hennar, gert af Björvini Tómassyni, orgelsmið.

Í kirkjunni er að finna tvær eldri altaristöflur. Önnur er frá Steinsholti þar sem sat m.a. sr. Daði Halldórsson. Hin gefin af frú Sigríði Jónsdóttur, ekkju hr. Jóns Vídalín biskups Annó 1728. 

Sóknarprestur og sóknarnefnd.

Axel Árnason Njarðvík, 15/10 2009

Aukahéraðsfundur í Árnesprófastsdæmi

Að beiðni Kirkjuráðs er boðað til aukahéraðsfundar þann 20. október 2009 kl. 19:00 á Hótel Heklu á Skeiðum.
Verkefni fundarins er að kynna tillögur biskupafundar að sameiningu prestakalla í uppsveitum Árnessýslu , þ.e.Hruna og Stóra- Núps og Skálholts og Mosfells og tillögu þess efnis að Þingvallaprestakall verði lagt niður og Þingvallasókn sameinuð Miðdalssókn.

Prófastur vekur athygli á því að vegna hins skamma fyrirvara sem gefinn er þá eru fyrirmæli starfsreglna um löglega boðun fundarins ekki uppfyllt.
Fundurinn var auglýstur í héraðsblöðum þann 8. okt sl.
Ég vona samt að við hjálpumst að við að koma boðum til þeirra er láta sig málið varða.
með góðri kveðju.
Eiríkur Jóhannsson

Axel Árnason Njarðvík, 15/10 2009

Hrepphólakirkja 100 ára

 Þann 9. október 1909 var Hrepphólakirkja í Hrunaprestakalli vígð. Senn eru liðinn 100 ár og af því tilefni verður efnt til hátíðarhalda sunnudaginn 11. október. Að lokinni hátíðarmessu þar sem vígslubiskup Skálholtsstiftis mun prédika verður flutt dagskrá í tali og tónum þar sem stiklað verður á stóru í sögu kirkjunnar og þess sem henni tengist. Það er von sóknarnefndar og prests að sjá sem flesta af velunnurum kirkjunnar fjær og nær þennan dag.

Axel Árnason Njarðvík, 11/10 2009

Tónleikar- Trú og von- Sunnudagurinn 27. sept. Sálmar sr. Matthíasar

Tvennir tónleikar verða haldnir sunnudaginn 27. september nk. Kl. 16:00 í Eyrarbakkakirkju og kl. 20:30 í Stóra-Núpskirkju.
Þá flytja þau Gerður Bolladóttir, sópran, Hilmar Örn Agnarsson, orgel og Victoría Tarevskaia, selló, sálma sr. Matthíasar Jochumssonar í gömlum og nýjum útsetningum ásamt trúarlegum verkum eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Georg Friedrich Handel og Johann Sebastian Bach.

Tilvalið að ganga þar inn í bjartsýni trúar og vonar í tak við ljúfa himneska tóna. Engin er aðgangseyririnn.

Axel Árnason Njarðvík, 21/9 2009

Stóra-Núpskirkja, sunnudaginn 20. september kl.14

Guðsþjónusta verður í Stóra-Núpskirkju sunnudaginn 20. september kl. 14. Í guðspjalli þess sunnudags verður lagt út af orðum Jesú er hann sagði: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.”

Axel Árnason Njarðvík, 17/9 2009

Hrepphólakirkja og Ólafsvallakirkja

Tvær guðsþjónustur verða á sunnudaginn 6. september.

Sú fyrri verður í Hrepphólakirkju kl. 11 en þá hefjast fermingarstörfin. Fermingarbörn og foreldrar eru sérstaklega beðin að koma út að Hrepphólum.

Guðsþjónusta verður síðan í Ólafsvallakirkju á Skeiðum, kl. 14.00. 

Allir alltaf hjartanlega velkomnir.

 

Síðan verður næst messað á Stóra-Núpi sunnudaginn 20. september kl. 14:00

Axel Árnason Njarðvík, 3/9 2009

Guðsþjónusta í Keldnakirkju

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 14:00 verður guðsþjónusta í Keldnakirkju.

Guðbjörg Arnardóttir, 23/8 2009

Fjallamessa við Hólaskjól í Lambaskarðshólum

Útimessa við Miklafell

Útimessa við Miklafell

Útimessa verður rétt hjá Hólaskjóli í Lambaskarðshólum sunnudaginn 16. ágúst 2009 kl. 14.00. Séra Ingólfur Hartvigsson þjónar fyrir altari og Gunnar Einar Steingrímsson, djákni prédikar. Mæting er við Hólaskjól kl. 13.45. Eftir messu verður boðið upp á kaffi í Hólaskjóli.Fjölmennum til messunnar og njótum þess að eiga notalega stund saman umvafin náttúrufegurð Íslands.

Ingólfur Hartvigsson, 13/8 2009

Sálgæsluviðtöl
Margt fólk sækir viðtalstíma presta. Þeir veita margs konar ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta bæði einstaklinga og fjölskyldur. Öllum er frjálst að leita til prestanna og ekki er gert að skilyrði að menn séu í Þjóðkirkjunni. Ekki er greitt sérstaklega fyrir sálgæsluviðtöl.

Póstlisti síðunnar: sendið póst á sudurland-subscribe@netkirkjan.is

Það er einfalt mál að ganga í þjóðkirkjuna. Fylla þarf eitt eyðublað, prenta það út og senda!

Fyrir 16 ára og eldri

Fyrir börn yngri en 16 ára

Báðir foreldrar eða forsjármenn þurfa að skrifa undir tilkynningar barna sinna yngri en 16 ára. Börn sem eru orðin 12 ára þurfa einnig að skrifa undir sína umsókn með forsjármönnum.

Eyðublöðin má skila í hendur sóknarpresta eða senda sem símbréf (515 5310) til Þjóðskrár eða í pósti, merkt: Þjóðskrá, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Ennfremur er bent á netskil

 

Fellsmúli Landi. Sími 4876585 , fax 4876603 · Kerfi RSS