Skálholtsprestakall
Í Skálholtsprestakalli eru fjórar sóknir en þær eru Skálholtssókn, Torfastaðasókn, Bræðratungusókn og Haukadalssókn. Í prestakallinu eru því fjórar sóknarkirkjur. Auk þeirra hefur fimmta kirkjan, Úthlíðarkirkja, verið byggð á hinum fornhelga stað, Úthlíð en hún er í einkaeign. Reglulegt helgihald er í öllum þessum fimm kirkjum.
Skálholtsdómkirkja er stærst þessara kirkna, en fyrir utan að vera bæði sóknarkirkja og dómkirkja er hún þjóðarhelgidómur, enda hefur Skálholt lengi verið helgur staður í huga íslensku þjóðarinnar.
Torfastaðakirkja er í stærstu sókn prestakallsins en þar býr yfir helmingur sóknarbarnanna.
Bræðratungukirkja er minnsta kirkjan í prestakallinu, enda er Bræðratungusókn minnsta sóknin. Þar er þó öflugt safnaðarstarf og kirkjusókn venjulega góð, enda sækir fólk víða að guðsþjónustur í þessari fallegu kirkju.
Haukadalskirkja er í eigu Skógræktar Ríkisins en Sóknarnefnd Haukadalssóknar sér um viðhald hennar og rekstur, enda er í henni helgihald allan ársins hring á vegum sóknarinnar. Auk þess er hún mikið notu
ð fyrir hjónavígsur og eru brúðhjónin þá oft langt að komin. Kirkja hefur nú staðið í um 1000 ár á þessu forna frægðarsetri sem Haukadalur er. Nú er kirkjan ein eftir og minnir okkur á orð Jesaja spámanns: Grasið visnar, blómin fölna en orð Guðs vors varir að eilífu. (Jes 40:8)
Úthlíðarkirkja er nýjasta kirkjan, reist af Birni Sigurðssyni bónda í Úthlíð. Þar er nú helgihald allan ársins hring og kirkjusókn einstaklega góð.
Sóknarprestur í Skálholtsprestakalli er sr. Egill Hallgrímsson.
Upplýsingar um helgihald og kirkjustarf í Skálholtsprestakalli eru á vefsíðunni www.ljosfari.is