Messur um jól og áramót
Viðgerð kirkjunnar miðaði svo vel í nóvember og desember að hægt var að hafa hátíðarguðsþjónustu í Þingvallakirkju á jóladag 25.desember kl. 14.00.
Kirkjan var full af fólki og allir fundu að nú voru komnir nýir ofnar, því það var mjög hlýtt í kirkjunni. Fermingarbörn næsta vors, Svanborg Signý á Heiðarbæ og Elías Bergmann í Mjóanesi lásu jólaguðspjallið, kór Margréta Bóasdóttur söng hátíðasöngvana, Benedikt Kristjánsson söng Ó, helga nótt, og Guðmundur Vilhjálmsson var organisti.
Næsta messa er á nýársdag kl. 14.
Búið er að lagfæra hleðsluna undir kirkjunni á þrjá vegu og smiðir og málarar hafa tryggt gott ástand kirkjunnar að innan. Viðgerð á kirkjunni og umhverfi hennar heldur svo áfram á nýju ári. Í stórum dráttum verður þetta þannig að það verða hlaðnar nýjar tröppur og stígur lagður þaðan niður á stéttina milli bæjar og kirkju, með aðgengi fyrir hjólastól. Stígur verður einnig lagður meðfram kirkjunni sunnanmegin. Hleðslur verða lagfærðar. Þá verður einnig unnið við lagfæringar á vegghleðslum umhverfis kirkjugarðinn.
Vegna rausnarlegs framlags úr jöfnunarsjóði Þjóðkirkjunnar sjáum við framá að Þingvallakirkja geti fagnað 150 ára afmæli sínu haustið 2009 með sóma. Fyrirhugað erað minnast þessara tímamóta með ýmsum hætti með fjölbreyttri sumardagskrá. Hátíðarmessa í tilefni afmælisins er fyrirhuguð síðari hluta október, en afmælið sjálft, eða vígsludagurinn er jóladagur 2009.
Kristján Valur Ingólfsson, 31/12 2008 kl. 19.48