Þingvallakirkja

 

Messa á Höfuðdaginn 29. ágúst

Sunnudagurinn 29. ágúst er Höfuðdagur. Þá er minnst þess atburðar er Jóhannes skírari missti höfuðið fyrir að segja sannleikann. Messa er kl. 14 í Þingvallakirkju. Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir leikur á fiðlu með föður sínum organistanum Guðmundi Vilhjálmssyni. Lestra og meðhjálparaþjónustu annast Sigrún V Ásgeirsdóttir, Margrét Eggertsdóttir og Dóra Diego. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari.

Klukkan 15.30 er skírnarguðsþjónusta. Skírð verða tvö börn.

Kristján Valur Ingólfsson, 25/8 2010 kl. 10.40

     

    Sími 897 2221 · Kerfi RSS