Þingvallakirkja

 

Messa sunnudaginn 8.ágúst

Sunnudaginn 8. ágúst er messa kl. 14. Í messunni verður minnst séra Braga Friðrikssonar fyrrum prófasts Kjalarnesprófasdæmis, sem andaðist í maí. sl. Séra Bragi hafði fallist á að predika á Þingvöllum þennan sunnudag í ágúst þegar áætlun um sumarmessurnar varð gerð í upphafi árs. Hann hafði reyndar látið vita strax í mars að af því myndi ekki geta orðið. Staðarprestur mun því predika og þjóna fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson, Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Meðhjálparar eru Birna Hjaltadóttir og Grétar Einarsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 7/8 2010 kl. 13.44

     

    Sími 897 2221 · Kerfi RSS