Þingvallakirkja

 

Útimessa í Skógarkoti

Sunnudaginn 1. ágúst kl. 14 verður messað í Skógarkoti, nema geri úrhellisrigningu. Þá er messað í Þingvallakirkju. Að Skógarkoti er genginn gamli konungsvegurinn, frá Efrivöllum, eða úr Vallakrók, merkt gönguleið: Skógarkot 1.8. km. Þetta er þægileg ganga og tekur um hálfa klukkustund. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson, meðhjálparar Helga Hróbjartsdóttir og Sigrún Ásgeirsdóttir og söngstjóri Guðmundur Vilhjálmsson sem leikur á básúnu.

Kristján Valur Ingólfsson, 1/8 2010 kl. 11.35

     

    Sími 897 2221 · Kerfi RSS