Messa í Þingvallakirkju 17.október
Messað var í Þingvallakirkju sunnudaginn 17.október. Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir lék á fiðlu í forspili og eftirspili ásamt föður sínum Guðmundi Vilhjálmssyni organista kirkjunnar. Úr hópi meðhjálpara sumarsins aðstoðuðu Sigrún V. Ásgeirsdóttir og Dóra Diego við lestur ritningartexta en Kristján Þorgeirsson hringdi klukkum og skrýddi prestinn. Þáttargerðarfólk frá ríkissjónvarpinu sem fjalla vildi um altaristöflu Ófeigs frá Heiðarbæ tók myndir í messunni. Eftir messu var kirkjukaffi á skrifstofu þjóðgarðsvarðar í Þingvallabænum.
Kristján Valur Ingólfsson, 5/11 2010 kl. 19.45