Útimessa í Skógarkoti sunnudag í verslunarmannahelgi
Klukkan 14 sunnudaginn 31.júlí er útimessa í Skógarkoti, ef veður leyfir. Messað hefur verið í Skógarkoti um verslunarmannahelgina undanfarin ár. Gengið er í Skógarkot eftir gömlu þjóðleiðinni um Þingvelli. Leiðin hefst á Efrivöllum, merkt Skógarkot. Gangan tekur um hálfa stund. sr. Gunnþór Ingason predikar. Guðmundur Vilhjálmsson leikur á básúnu og Bragi Vilhjálmsson á saxofón. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson
Kristján Valur Ingólfsson, 29/7 2011 kl. 12.36