Síðasta messa sumarsins
Sunnudaginn 4.september er messa í Þingvallakirkju kl. 14. Með þessari messu lýkur sumarmessunum þegar messað er hvern sunnudag til jafnaðar. Meðhjálparar sumarsins taka þátt í messunni og standa fyrir kirkjukaffi að messu lokinni. Ása Guðjónsdóttir og Sigurður Bjarnason lesa lestra og bænir. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng, organisti er Guðmundur Vilhjálmsson. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari.
Kristján Valur Ingólfsson, 31/8 2011 kl. 23.37