Þingvallaprestur er biskup í Skálholti
Þann 3.september voru talin atkvæði í kjöri vígslubiskups í Skálholti. Sóknarpresturinn á Þingvöllum hlaut þar afgerandi kosningu og var vígður til biskupsþjónustu þann 18. september. Um sinn verður engin breyting á þjónustu hans á Þingvöllum, en í ljósi þessara breytinga þarf söfnuðuðurinn ásamt prestinum og þjóðgarðsverði og Þingvallanefnd að finna farsæla lausn á prestsþjónustunni til framtíðar. Biskupafundur hefur nú þegar ályktað um þetta, og verður bókun fundarins kynnt sókninni á almennum safnaðarfundi sem boðað verður til innan tíðar.
Kristján Valur Ingólfsson, 2/10 2011 kl. 19.32