Þingvallakirkja

 

Predikun jóladagsins

Eins og venjulega var gott að vera til kirkju á Þingvöllum á jóladag. Það var heldur færra fólk en venjulega, enda veðurútlit og færð ekki með besta móti, en  litla kirkjan var þéttsetin samt, af ungum og öldnum, og alltaf er jafn ánægjulegt bæði að sjá sömu andlitin ár eftir ár, heimamanna og lengra að komna, og að sjá nýju og ungu andlitin bætast við. Fermingarbörn næsta vors, Kristrún Kolbeinsdóttir í Heiðarási og Sveinbjörn Jóhannesson Heiðarbæ I,  lásu jólaguðspjallið  af stakri snilld. Kórinn var góður eins og venjulega þó hann væri aðeins fámennari. Og Kolbeinn var búinn að hreinsa veginn alveg heim að dyrum. Ef einhver vill lesa predikunina, þá er hún hér : Guð er kærleikur

Kristján Valur Ingólfsson, 26/12 2011 kl. 12.52

     

    Sími 897 2221 · Kerfi RSS