Þingvallakirkja

 

Helgihald

Messað er hvern sunnudag yfir sumartímann, en til jafnaðar einu sinni í mánuði yfir veturinn.

Með því að smella á flipann Dagskrá kemur upp skrá um messur og annað helgihald í Þingvallakirkju.

Settur prestur á Þingvöllum er séra Kristján Valur Ingólfsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu.  Sími sóknarprests er 897 22 21.

Athafnir í kirkjunni  eru bókaðar af starfsfólki þjóðgarðsins í síma 482 2660

 

Prestsþjónusta á Þingvöllum

Kristján Valur Ingólfsson hefur verið settur prestur í Þingvallaprestakalli frá því  í maí 2004, en án búsetu í sókninni. Séra Heimir Steinsson (1937-2000) var síðasti prestur prestakallsins sem bjó í Þingvallabænum. Hann lést langt fyrir aldur fram árið 2000. Frá árinu 2000 til 2004 var Þingvallaprestakalli þjónað í tímabundinni þjónustu eða í aukaþjónustu presta úr Árnesprófastdæmi.

Aðstæður í Þingvallaprestakalli eru óvenjulegar að því leyti að íbúar sem eiga lögheimili í prestakallinu eru liðlega 30, en um það bil 300 þúsund gestir vitja Þingvalla á ári hverju. Þar að auki dvelur stór hópur fólks í sumarbústöðum við vatnið eða í nágrenni þess um lengri eða skemmri tíma í viku hverri og sumir þeirra sækja kirkju nokkuð reglulega.

Skýrslur um guðsþjónustur og aðrar athafnir í kirkjunni undanfarin ár sýna samfellt starf og góða þátttöku. Hin landfræðilegi og raunverulegi söfnuður er þar skýr og ákveðin kjölfesta, en þátttakan í helgihaldinu tekur allt að einu mið af þeim sem eru gestkomandi.

Að þessu leyti minnir Þingvallakirkja á sumrin frekar á svokallaðar vegkirkjur, eins og víða má finna á meginlandi Evrópu, heldur en hefðbundna sóknarkirkju. Kirkjustarfið hefur tekið mið af því. Sumarmánuðina  er starfið  skipulagt í náinni samvinnu við þjóðgarðinn og starfsfólk hans.

     

    Sími 897 2221 · Kerfi RSS