Í síðustu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins fjallar Magnús Jónsson sagnfræðingur um mismunandi Íslendingasögur og tengsl þeirra við Þingvelli. Gangan hefst kl.20 við fræðslumiðstöðina. Að henni lokinni eru kvöldbænir í Þingvallakirkju.
Kristján Valur Ingólfsson, 27/7 2011
Sunnudaginn 24.júlí er messa kl. 14. Síra Gunnar Björnsson predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og meðhjálpari Sigrún V. Ásgeirsdóttir. Í héraðsfréttablöðunum er þess getið að sérstaklega verði minnst séra Eiríks J. Eiríkssonar fyrrum þjóðgarðsvarðar og sóknarprests á Þingvöllum, en um þessar mundir eru 100 ár frá fæðingu hans. Sr. Eiríks verður minnst með dagskrá á öðrum stað og tíma.
Kristján Valur Ingólfsson, 22/7 2011
Fimmtudagskvöldið 21.júlí er sjöunda og næst síðasta fræðsluganga Þjóðgarðsins þetta sumarið. Valgarður Egilsson læknir, rithöfundur og leiðsögumaður fær sjálfdæmi um umræðuefni og rifjar upp ýmsar sagnir úr sögu Þingvalla frá þjóðveldisöld fram á síðustu öld. Gangan hefst á Hakinu kl. 20. Þegar göngunni lýkur eru stuttar kvöldbænir í Þingvallakirkju fyrir þau sem vilja koma þar við áður en þau halda heim.
Kristján Valur Ingólfsson, 19/7 2011
Sunnudaginn 17.júlí er messa kl. 14. Séra Þórir Jökull Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarprestinum. Messan fer fram bæði á dönsku og íslensku. Skírð verður Silja Theodóra dóttir séra Þóris og Piu Heidi konu hans og síðan fylgir kirkjuleg blessun hjónabands foreldranna. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og meðhjálparar Sigrún V Ásgeirsdóttir og Helga Hróbjartsdóttir.
Kristján Valur Ingólfsson, 17/7 2011
Laugardaginn 16.júlí kl. 10 er ferðabæn og fararblessun pílagríma á leið frá Þingvöllum til Skálholts í Þingvallakirkju. Á þann hátt hefst pílagrímaganga til messu í Skálholtskirkju á Skálholtshátíð ár hvert. Laugardaginn er gengið til Laugarvatns og þaðan áfram til Skálholts sunnudaginn 17.júlí og komið þangað í þann mund sem messa hefst.
Kristján Valur Ingólfsson, 15/7 2011
Í fimmtudagskvöldgöngu 14.júlí ræðir Ómar Ragnarsson náttúruvernd og stjórnarskrá. Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina á Hakinu klukkan 20.00 og tekur um eina og hálfa klukkustund. Að lokinni göngu eru kvöldbænir í Þingvallakirkju.
Kristján Valur Ingólfsson, 13/7 2011
Sunnudaginn 10. júlí er messa kl. 14. sr. Gunnþór Ingason, áður sóknarprestur í Hafnarfirði, en nú prestur á sviði þjóðmenningar og helgihalds og með ákveðnar skyldur við Þingvallakirkju, predikar og þjónar fyrir altari. sr. Gunnþór hefur sérstakan áhuga fyrir keltneskri arfleifð kristindómsins í landinu og hefur sinnt rannsóknum á því sviði. Messan á sunudaginn verður með keltnesku ívafi, þar sem textar og bænir úr hinni fornu arfleifð heyrast. Hjörtur Howser tónlistarmaður leikur á orgelið og leiðir söng. Meðhjálparar eru Ása Guðjónsdóttir og Sigurður Bjarnason.
Kristján Valur Ingólfsson, 9/7 2011
Að morgni sunnudagsins 10. júlí kemur lítill hópur pólskra pílagríma, þar á meðal fjórir kaþólskir prestar, til Þingvalla og gerir viðdvöl í Þingvallakirkju þar sem þeir syngja messu. Þetta er í annað sinn á síðustu árum sem slíkur hópur hefur áningarstað í Þingvallakirkju. Heimsóknir af þessu tagi eru mikið fagnaðarefni þeim sem unna kirkju og kristni.
Kristján Valur Ingólfsson, 9/7 2011
Fræðsluganga þjóðgarðsins 7.júlí ber yfirskriftina Myndin af Þingvöllum. Einar Garibaldi, myndlistarmaður og sýningarstjóri sýningarinnar með sama heiti í Listasafni Árnesinga ræðir um Þingvelli og áhrif þeirra í myndlist. Dagskráin hefst á Hakinu kl. 20. Að lokinni fræðslu verða kvöldbænir í Þingvallakirkju um kl. 22. í umsjá Ásu Guðjónsdótttur og Sigurðar Bjarnasonar.
Kristján Valur Ingólfsson, 7/7 2011
Síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju verða í kvöld, 5.júlí kl. 20. Það er sönghópurinn Voces Thules sem flytur fjölbreytta söngva og spannar efnisskráin söng allt frá söguöld til og með endurreisnartímans.
Kristján Valur Ingólfsson, 5/7 2011