Englarnir syngja um frið á jörðu. Það var ekki friður á jörðu þessa nótt fyrir tvö þúsund árum, og það er ekki enn friður á jörðu. Í borg Davíðs Betlehem hefur þrásinnis á síðustu árum öllu hátíðahaldi verið aflýst um jól. Þetta árið eru gistihúsin tóm en ekki full. Það er stór jólagjöf að mega búa í þessu landi, þó að myrkt sé stundum, en þakklætið fyrir birtuna og hlýjuna er væntanlega dýpra fyrir vikið.
Lesa prédikunina í Postillunni …
Kristján Valur Ingólfsson, 28/12 2005
Jóladagur er vígsludagur Þingvallakirkju og þess vegna afmælisdagur hennar. Nú styttist í 150 ára afmælishátíð. Messað var kl. 14. í óvenjulegu jólaveðri, roki og rigningu. Glæsilega hljómandi kór (þrír í hverri rödd) gerði messuna enn hátíðlegri. Predikunina má lesa í postillu kirkjunnar.
Kristján Valur Ingólfsson, 27/12 2005
Messað verður í Þingvallakirkju á jóladag, 25.desember, kl. 14. Sönghópur undir stjórn Margrétar Bóasdóttir syngur. Sungnir verða hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og prestur er Kristján Valur Ingólfsson. Á nýársdag, 1.janúar 2006 verður einnig messa í Þingvallakirkju kl. 14.00. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og prestur Kristján Valur Ingólfsson, en setning hans til þjónustu við kirkjuna hefur verið framlengd.
Kristján Valur Ingólfsson, 20/12 2005
Messað verður í Þingvallakirkju 27.nóvember kl. 14.00 á 1.sunnudegi í aðventu. Blásaranemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar leika í messunni undir stjórn kennara síns, organistans Guðmundar Vilhjálmssonar. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson
Kristján Valur Ingólfsson, 26/11 2005
Messa verður í Þingvallakirkju 23. október kl. 14. Þetta er fyrsti sunnudagur í vetri. Í messunni verður afhentur sjóður sem stofnaður hefur verið til minningar um Guðbjörgu Einarsdóttur frá Kárastöðum. Systursonur hennar, Einar Jóhannesson,klarinettuleikari í Sinfoníuhljómsveit Íslands, tekur þátt í messunni.
Lesa áfram …
Kristján Valur Ingólfsson, 22/10 2005
Sunnudaginn 25.september verður messa í Þingvallakirkju kl. 14.00. Guðfræðinemar koma í messu- og haustlitaferð og aðstoða við messuna. Safnast verður saman á bílastæðinu á Efrivöllum kl. 13.00 og gengið þaðan um Lögberg til kirkju. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 22/9 2005
Við messu síðastliðinn sunnudag var barn borið til skírnar. Það er ævinlega sérstök hátíð í kirkjunni þegar barn er skírt. Það er ekkert nýtt eðá óvenjulegt við það. Nýmæli dagsins voru með öðrum hætti. Í glugga yfir dyrum var ekki lengur gler og listar, heldur krossviðarplata. Ástæðan var sú að á föstudaginn og aftur á laugardagsmorgun hafði verið gerð tilraun til innbrots í kirkjuna. Um þá iðju skal ekki fjölyrt. Hitt er alveg augljóst, að ekki er gott að Þingvallakirkja búi ekki við gæslu sem nær lengra en sú sem nú er tryggð. Stærstur hluti starfsfólks Þjóðgarðsins lýkur störfum nú um mánaðamótin. Kirkjan á Þingvöllum er ekki bara venjuleg kirkja. Hún er íslendingum tákn um samvinnu þjóðar og kirkju í þúsund ár og hún er erlendum gestum tákn um grundvallargildi meirihluta hinnar íslensku þjóðar.
Kristján Valur Ingólfsson, 29/8 2005
Sunnudaginn 28.ágúst verður að venju messa kl. 14.00. Lítil stúlka verður borin til skírnar. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 26/8 2005
Í fjarveru sóknarprests verður messa sunnudagsins í umsjá góðra gesta. sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari en Árni Svanur Danielsson, guðfræðingur og vefstjóri þjóðkirkjunnar, predikar. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson. Messan hefst kl. 14.00.
Kristján Valur Ingólfsson, 26/8 2005
Messa er í Þingvallakirkju kl. 14. næstkomandi sunnudag. sr. Jón Helgi Þórarinsson, prestur í Langholtskirkju predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 13/8 2005