Þingvallakirkja

 

Kvöldbænir eftir síðustu kvöldgöngu sumarsins

Í kvöld 28.júlí er síðasta kvöldganga á fimmtudagskvöldi á Þingvöllum. Sverrir Jakobsson sagnfræðingur fjallar um heimsmynd Íslendinga 1100-1400. Þegar göngu lýkur eru kvöldbænir í Þingvallakirkju í umsjón sr. Halldórs Reynissonar.

Kristján Valur Ingólfsson, 28/7 2005

Helgihaldið framundan

Sunnudaginn 31.júlí verður ekki barna - og fjölskyldumessa eins og fyrirhugað hafði verið (og fram kemur á heimasíðu þjóðgarðsins). Sú messa hefur verið færð til 7.ágúst, þegar messað verður undir berum himni í Skógarkoti. Messan 31.júlí verður með venjulegu sniði, en góðum gestum. Furugerðiskórinn, sem er kór eldri borgara, syngur í messunni undir stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 27/7 2005

Göngumessa í góðu veðri

Göngumessan síðastliðin sunnudag tókst í alla staði vel. Veðrið var yndislegt og góð þátttaka. Um 70 manns, eldri og yngri, tóku þátt í messunni. Glæsivagnar Fornbílaklúbbsins settu líka svip á staðinn er þeir óku til og frá messu.

Kristján Valur Ingólfsson, 27/7 2005

Göngumessa sunnudaginn 24.júlí

Sunnudaginn 24.júlí verður sú nýbreytni í messuhaldi Þingvallakirkju að haldin verður svokölluð göngumessa. Messan er í samvinnu við Fornbílaklúbb Íslands sem heimsækir Þingvelli þennan dag. Messan hefst við fánastöngina á bílastæðinu framan við Hótel Valhöll.kl.14.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 23/7 2005

Kvöldbænir á fimmtudagskvöldi 21.júlí

Að lokinni kvöldgöngu þar sem frú Vigdís Finnbogadóttir fjallar um þjóðargersemina Þingvelli verða kvöldbænir í Þingvallakirkju fyrir þau sem vilja staðnæmast þar áður en þau halda heim. Bænirnar hefjast um kl. 21.45 og standa í tíu mínútur.

Kristján Valur Ingólfsson, 21/7 2005

Messa og Skálholtshátíð

Sunnudaginn 17.júlí er haldin Skálholtshátíð. Af því tilefni er messan í Þingvallakirkju kl.11, en ekki kl. 14 eins og venja er. Þannig geta kirkjugestir einnig sótt Skálholt heim og hlýtt hátíðamessu þar kl. 14. Í ÞIngvallakirkju predikar ljóðskáldið Hjörtur Pálsson, cand.mag, sem er langt kominn með nám til kandidatsprófs í guðfræði við Guðfræðideild Háskóla Íslands. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 17/7 2005

Kvöldbænir á fimmtudagskvöldið 14.júlí

Að lokinni göngu á fimmtudagskvöldi þar sem Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefndar segir frá störfum nefndarinnar, verða kvöldbænir í Þingvallakirkju. Bænirnar hefjast um kl. 21.45 og standa í 10 mín.

Kristján Valur Ingólfsson, 13/7 2005

Kvöldbænir og fermingarmessa

Fimmtudagskvöldið 7.júlí verða kvöldbænir í Þingvallakirkju. Bænirnar eru í framhaldi af fimmtudagsgöngu í Þjóðgarðinum og hefjast kl. 21.45. Kvöldbænirnar taka um það bil tíu mínútur.

Á sunnudaginn 10.júlí verður messa kl. 14.00. Prestur er séra Pálmi Matthíasson. Fermdir verða tveir drengir Emil Örn Ólafsson og Stefán Viktorsson. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 6/7 2005

Messa í Þingvallakirkju 26.júní

Messa er í Þingvallakirkju 26.júní kl. 14.00. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson og prestur Kristján Valur Ingólfsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 26/6 2005

Fmmtudagskvöldganga og kvöldbænir í kirkjunni

Að lokinni fimmtudagskvöldgöngu 23.júní þar sem Þórarinn Þórarinsson, arkitekt gerir grein fyrir kenningum sínum um þingstaðinn forna, býðst þeim sem vilja að ganga til kirkju og taka þátt í stuttum kvöldbænum. Bænirnar hefjast um kl. 21.45, eða í beinu framhaldi af göngunni, ef hún endar fyrr.

Kristján Valur Ingólfsson, 22/6 2005

Messað er í Þingvallakirkju hvern helgan dag frá hvítasunnu til höfuðdags.
Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins
(sími 482 2660)
sér um að bóka giftingar og skírnir og aðrar kirkjuathafnir í Þingvallakirkju.
Sími sóknarprests er
897 2221.

Messutilkynningar eru hér á vefnum, í Morgunblaðinu og héraðsfréttablöðum.





Sjá einnig síðu http://www.thingvellir.is/

 

Sími 897 2221 · Kerfi RSS