Messa í Þingvallakirkju 26.júní
Messa er í Þingvallakirkju 26.júní kl. 14.00. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson og prestur Kristján Valur Ingólfsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 26/6 2005
Messa er í Þingvallakirkju 26.júní kl. 14.00. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson og prestur Kristján Valur Ingólfsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 26/6 2005
Að lokinni fimmtudagskvöldgöngu 23.júní þar sem Þórarinn Þórarinsson, arkitekt gerir grein fyrir kenningum sínum um þingstaðinn forna, býðst þeim sem vilja að ganga til kirkju og taka þátt í stuttum kvöldbænum. Bænirnar hefjast um kl. 21.45, eða í beinu framhaldi af göngunni, ef hún endar fyrr.
Kristján Valur Ingólfsson, 22/6 2005
Tvö hús. Þau standa hlið við hlið. Tvö tákn um sögu sem er samofin í þúsund ár. Tvö hús. Dómkirkjan í Reykjavík og Alþingishúsið. Tvisvar á ári rifja þau upp sína formlegu tengingu þegar þau sem þjóna landi og lýð í þinghúsinu ganga fram fyrir altari Guðs, ásamt þjónum kirkjunnar: Við setningu Alþingis og 17.júní.
Kristján Valur Ingólfsson, 22/6 2005
Til hamingju með daginn. Þetta er gleðidagur. Dagurinn 19. júní hefur verið tileinkaður hátíðis- og baráttudegi kvenna. Það var 19. júní árið 1915 sem Kristján konungur X skrifaði undir frumvarp frá Alþingi þess efnis að íslenskar konur skyldu hafa kosningarétt til Alþingis … sagði Svanhildur Blöndal í prédikun 19. júní.
arni.svanur.danielsson, 20/6 2005
Sunnudaginn 19. júní, þegar því er fagnað að 90 ár eru síðan konur fengju kosningarétt, og fagnað er 90 ára afmæli þjóðfánans, er messa í Þingvallakirkju kl. 14.00. Svanhildur Blöndal, guðfræðingur og hjúkrunarfræðingur og verðandi prestur, predikar. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 18/6 2005
Þjóðhátíðardagurinn 17.júní er ekki fastur messudagur í kirkjum og söfnuðum Þjóðkirkjunnar. Óhugsandi er þó að ekki sé guðsþjónusta í Þingvallakirkju þann dag, þó ekki væri nema af sögulegum ástæðum.
Guðsþjónusta verður í Þingvallakirkju 17.júní kl. 14.00. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 17/6 2005
Allir þykjast vilja fylgja Jesú í upphafi en þegar á reynir finna menn alls konar afsakanir til að vera áfram heima í sjálfu sér ekki slæmar ástæður en þegar stefnan er tekin á nýjan stað þá eru allar úrtölur og hjáleiðir ógildar. Þá þýðir ekkert að horfa til baka … sagði Pétur Pétursson í prédikun á Sjómannadaginn.
arni.svanur.danielsson, 16/6 2005
Fimmtudaginn 16.júní kl. 21.45 verða kvöldbænir í Þingvallakirkju. Þessi bænagjörð er tilboð til þeirra sem hafa tekið þátt í kvöldgöngu á Þingvöllum og vilja ljúka heimsókn sinni með því að ganga til kirkju til bæna. Í kvöld annast Árni Svanur Danielsson, guðfræðingur, kvöldbænirnar.
Kristján Valur Ingólfsson, 15/6 2005
Líkt og verið hefur undanfarin ár skipuleggur Þjóðgarðurinn kvöldgöngur á fimmtudagskvöldi. Á þessum kvöldum verður kirkjan opin og um það bil sem göngunni lýkur verða kvöldbænir með einföldu sniði í kirkjunni fyrir þau sem myndu vilja ljúka kvöldinu með kirkjugöngu. Áætlað er að kvöldbænirnar hefjist um kl. 21.45. Þær taka um það bil tíu mínútur. Fyrstu kvöldbænirnar verða fimmtudagskvöldið 9.júní n.k. og síðan hvert fimmtudagskvöld til júlíloka.
Kristján Valur Ingólfsson, 8/6 2005
Sunnudaginn 5.júní, sem er sjómannadagur er messa í Þingvallakirkju kl. 14.00. Dr. Pétur Pétursson prófessor í kennimannlegri guðfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands predikar, en Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 2/6 2005
Messað er í Þingvallakirkju hvern helgan dag frá hvítasunnu til höfuðdags.
Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins
(sími 482 2660)
sér um að bóka giftingar og skírnir og aðrar kirkjuathafnir í Þingvallakirkju.
Sími sóknarprests er
897 2221.
Messutilkynningar eru hér á vefnum, í Morgunblaðinu og héraðsfréttablöðum.
Sjá einnig síðu http://www.thingvellir.is/
Sími 897 2221 · Kerfi ![]()