Þingvallakirkja

 

Engin messa í Þingvallakirkju sunnudaginn 29.maí

Héraðsfundur Árnesprófasdæmis verður haldinn í Selfosskirkju sunnudaginn 29.maí. Þar sem það tilheyrir embættisskyldum sóknarprests að mæta þar verður engin messa í Þingvallakirkju þann sunnudaginn.

Næsta messa er sunnudaginn 5.júní kl. 14.00. Þá er sjómannadagur. Dr. Pétur Pétursson, prófessor í kennimannlegri guðfræði mun predika í Þingvallakirkju þann dag.

Kristján Valur Ingólfsson, 28/5 2005

Messa sunnudaginn 22. maí

Messað verður á Þingvöllum á þrenningarhátíð, sunnudaginn 22. maí. Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson og organisti er Hrönn Helgadóttir.

Kristján Valur Ingólfsson, 19/5 2005

Hvítasunnudagur. Hátíðarmessa á Þingvöllum

Á hvítasunnudag 15.maí verður hátíðarmessa í Þingvallakirkju kl.14.00. Hildur Eir Bolladóttir, sem um þessar mundir er að ljúka cand.theol prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands predikar. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 14/5 2005

Bænadagurinn 1.mai

Það var dálítið kalt á Þingvöllum 1.mai þegar haldinn var bænadagur að fornum sið með gönguferð og lúðrablæstri. Unga fólkið blés fallega í kirkjunni og síðan á Lögbergi. Ætlunin var að fara alla leið að Öxarárfossi, en við létum nægja að fara að Öxará, því að fingur urðu stirðir í kuldanum. En hér er semsagt leikið Öxar við ána á 120 ára afmæli lagsins.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 14/5 2005

Messa sunnudaginn 1.maí

Messað verður í Þingvallakirkju næstkomandi sunnudag, 1.maí. Þá er hinn almenni bænadagur, auk þess að það er dagur verkalýðsins. Blásarasveit barna leikur undir stjórn Guðmundar Vilhjálmssonar, organista. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 25/4 2005

Kyrravika og páskar í Þingvallakirkju

Helgihald verður í Þingvallakirkju á föstudaginn langa og á páskadegi. Á föstudaginn langa verður guðsþjónusta kl. 14:00 og á páskadag verður messa við sólarupprás kl. 07.00 og kl. 14.00.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 23/3 2005

Messa á sunnudaginn

Messað verður í Þingvallakirkju næsta sunnudag, 6.mars, kl. 14.00. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari.

Kristján Valur Ingólfsson, 3/3 2005

Vegvísir á nýársdag

Í björtu og fallegu veðri var messa í Þingvallakirkju. Fáninn drúpti hljóður í hálfa stöng fyrir framan kirkjuna í hluttekningu með þeim þúsundum sem nú syrgja og sakna. Predikað var um vegvísinn í Jesú nafni.

Lesa predikunina.

Kristján Valur Ingólfsson, 1/1 2005

Nýársdagur á Þingvöllum

Á nýársdag, 1.janúar 2005, verður messa í Þingvallakirkju klukkan 14.00. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og prestur Kristján Valur Ingólfsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 30/12 2004

Og dýrð Drottins ljómar kringum þig

Ein hinna fögru jólaminninga okkar hinna eldri er um ljósið. Það loguðu ljós alla nóttina. Líka í kirkjunni. Það loga ljós, af því að ljósið er komið í heiminn.Í tvennum skilningi. Það loga ljós til að tengja saman dag og nótt.

Lesa prédikun jóladags …

Kristján Valur Ingólfsson, 26/12 2004

Messað er í Þingvallakirkju hvern helgan dag frá hvítasunnu til höfuðdags.
Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins
(sími 482 2660)
sér um að bóka giftingar og skírnir og aðrar kirkjuathafnir í Þingvallakirkju.
Sími sóknarprests er
897 2221.

Messutilkynningar eru hér á vefnum, í Morgunblaðinu og héraðsfréttablöðum.





Sjá einnig síðu http://www.thingvellir.is/

 

Sími 897 2221 · Kerfi RSS