Messað var í Þingvallakirkju á jóladag í björtu en köldu veðri. Til messu voru tæplega þrjátíu manns og áttu saman hlýja stund þrátt fyrir mikinn kulda í kirkjunni. Mæting úr heimasöfnuði Þinvallakirkju var daufleg og ekki til eftirbreytni.
Lesa áfram …
Kristján Valur Ingólfsson, 26/12 2004
Messað verður í Þingvallakirkju á jóladag kl. 14. Sönghópur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur syngur Hátíðasöngva sr. Bjarna Þorsteinssonar. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 22/12 2004
Með haustinu hægir á allri starfsemi á Þingvöllum. Svo er og um messuhald í Þingvallakirkju. Messað var hvern helgan dag frá maílokum til miðs september, en nú strjálast messur um hríð. Í byrjun október verður áætlun um messur til áramóta birt hér á vefnum.
Lesa áfram …
Kristján Valur Ingólfsson, 30/9 2004
Sunnudaginn 19.september er messa í Þingvallakirkju kl. 14. Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson og organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Í messunni verður lítill drengur borinn til skírnar.
Kristján Valur Ingólfsson, 18/9 2004
Messað verður í Þingvallakirkju sunnudaginn 12.september kl. 14.00. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson, prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson
Kristján Valur Ingólfsson, 10/9 2004
Biskup Íslands hefur falið sr. Kristjáni Val Ingólfssyni að annast prestsþjónustu á Þingvöllum í það minnsta til loka september, en þjónustutíma hans átti að ljúka 30.ágúst.
Kristján Valur Ingólfsson, 2/9 2004
Næsti sunnudagur er 29.ágúst. Höfuðdagur. Á þeim degi minnist kirkjan Jóhannesar skírara sem missti höfuðið vegna þess að hann sagði sannleikann. Messað verður í Þingvallakirkju kl.14.00. Guðmundur Vilhjálmsson er organisti. Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson
Kristján Valur Ingólfsson, 26/8 2004
Í dag var full kirkja á Þingvöllum. Guðmundur Vilhjálmsson, organisti og básúnuleikari blés til messu ásamt þrem félögum sínum í tíu mínútur fyrir messu. Hefði ekki ringt hraustlega meðan messað var hefði messan líka byrjað úti. Í staðinn lauk henni með því að söfnuðurinn gekk fylktu liði austur fyrir kirkjuna og söng lokasálminn undir berum himni, og hlýddi á eftirspil blásaranna þar. Guðspjall dagsins var um fariseann og tollheimtumanninn og predikun í samræmi við það.
Lesa predikunina …
Kristján Valur Ingólfsson, 22/8 2004
Sunnudaginn 22.ágúst er messa í Þingvallakirkju kl. 14. Organisti kirkjunnar Guðmundur Vilhjálmsson, sem einnig er básúnuleikari, hefur kallað til liðs við sig nokkra blásara sem bæði munu leika undir almennan söng í messunni og leika við kirkjudyr fyrir messu. Ef veður leyfir mun söfnuðurinn syngja lokasálm messunnar undir berum himni.Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 19/8 2004
Árni Svanur Daníelsson prédikaði í Þingvallakirkju á 10. sunnudegi eftir þrenningarhátíð. Í prédikuninni ræddi hann m.a. um það þegar Jesús hreinsar til í musterinu og um ólympíulágmörk.
Lesa prédikunina …
arni.svanur.danielsson, 18/8 2004