Fræðsluganga þjóðgarðsins 7.júlí ber yfirskriftina Myndin af Þingvöllum. Einar Garibaldi, myndlistarmaður og sýningarstjóri sýningarinnar með sama heiti í Listasafni Árnesinga ræðir um Þingvelli og áhrif þeirra í myndlist. Dagskráin hefst á Hakinu kl. 20. Að lokinni fræðslu verða kvöldbænir í Þingvallakirkju um kl. 22. í umsjá Ásu Guðjónsdótttur og Sigurðar Bjarnasonar.
Kristján Valur Ingólfsson, 7/7 2011
Síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju verða í kvöld, 5.júlí kl. 20. Það er sönghópurinn Voces Thules sem flytur fjölbreytta söngva og spannar efnisskráin söng allt frá söguöld til og með endurreisnartímans.
Kristján Valur Ingólfsson, 5/7 2011
Sunnudaginn 3.júlí verður messa í Þingvallakirkju kl. 14. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari. Guðmundur Vilhjálmsson er organisti. Meðhjálparar eru Birna Gunnarsdóttir og Þorsteinn Guðlaugsson. Í messunni er minnst dr. Sigurbjarnar Einarssonar biskups, en þann 30. júní voru hundrað ár frá fæðingu hans.
Kristján Valur Ingólfsson, 2/7 2011
Vegna fjarveru sóknarprests verður ekki messað í Þingvallakirkju sunnudaginn 19.júní. Kirkjan verður opin eins og á virkum degi frá kl. 10 - 16.
Kristján Valur Ingólfsson, 18/6 2011
Mikið verður um dýrðir á Þingvöllum þjóðhátíðardaginn. Að lokinni veglegri dagskrá í gömlum stíl sem hefst á Hakinu um hádegisbil verður guðsþjónusta í Þingvallakirkju þar sem séra Úlfar Guðmundsson, fyrrum prófastur Árnesinga predikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson. Meðhjálparar eru Kristján Þorgeirsson og Dóra Diego.
Kristján Valur Ingólfsson, 16/6 2011
Á fræðslugöngu Þjóðgarðsins á fimmtudagskvöldi 16.júní fjallar Margrét H. Hallmundsdóttir fornleifafræðingur um niðurstöður fornleifauppgraftrar sem fór fram við Þingvallakirkju árið 2009 vegna 150 ára afmælis kirkjunnar. Að lokinni göngu eru kvöldbænir í kirkjunni.
Kristján Valur Ingólfsson, 16/6 2011
Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju hefur hafið göngu sína þetta sumarið. Fyrstu tónleikarnir voru þriðjudaginn 14.júní. Þar léku Helga Aðalheiður Jónsdóttir, sem lék á margar gerðir blokkflauta, og Þórarinn Sigurbergsson, gítar, fjölbreytilega tónlist, einkum frá 16. og 17.öld við góðar undirtektir tónleikagesta sem fylltu kirkjuna.
Kristján Valur Ingólfsson, 16/6 2011
Fimmtdaginn 9. júní verður fyrsta fræðsluganga þjóðgarðsins á þessu sumri. Gangan hefst á Hakinu kl. 20.
Kvöldbænir eru í Þingvallakirkju að lokinni göngu kl. 22.00
Einar Á.E.Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins fjallar um Þingvelli í síðari heimsstyrjöldinni. Hann rekur sögu bandaríska hermannsins Charlie Frame sem dvaldi á Þingvöllum í bækistöðinni Camp Cornell og fylgdi síðar eftir innrás bandamanna inn í Þýskaland.
Kristján Valur Ingólfsson, 9/6 2011
Messa verður í Þingvallakirkju á hvítasunnudag 12.júní kl. 14. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson og organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Meðhjálparar Ása Guðjónsdóttir og Sigurður Bjarnason.
Kristján Valur Ingólfsson, 6/6 2011
Sunnudagurinn 29.maí er fimmti sunnudagur eftir páska og hinn almenni bænadagur. Klukkan 14 verður einföld guðsþjónusta í Þingvallakirkju með meðhjálpurum sumarsins.
Kristján Valur Ingólfsson, 23/5 2011