Þingvallakirkja

 

Messa næsta sunnudag

Sunnudaginn 15.ágúst verður messað kl. 14. í Þingvallakirkju. Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur og vefstjóri Þjóðkirkjunnar, predikar. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson og prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson

Kristján Valur Ingólfsson, 11/8 2004

Messa sunnudaginn 8.ágúst

Messað verður í Þingvallakirkju sunnudaginn 8.ágúst kl.14.00. Tónlistarmaðurinn KK syngur. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson, prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson

Kristján Valur Ingólfsson, 7/8 2004

Kvöldstund með KK í Þingvallakirkju

Tónlistarmaðurinn KK verður með tónleika í Þingvallakirkju laugardagskvöldið 7.ágúst kl. 20. Hann mun einnig taka þátt í messu í Þingvallakirkju sunnudaginn 8.ágúst kl. 14.00

Kristján Valur Ingólfsson, 6/8 2004

Messa síðasta sunnudags

Messað var á Þingvöllum sunnudag í verslunarmannahelgi, en þó með öðrum hætti en ætlað var.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 3/8 2004

Síðasta fimmtudagskvöldganga sumarsins

Síðasta kvöldganga á fimmudagskveldi á þessu sumri fór fram í gær í miklu vatnsveðri. Fámennt var í göngunni vegna þess og þurfti nokkurt harðfylgi til að ljúka henni.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 30/7 2004

Messa næsta sunnudag

Næsta sunnudag, 25.júlí er messa í Þingvallakirkju kl. 14.00. Prestur er sr. Egill Hallgrímsson, í Skálholti. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 22/7 2004

Breyttur messutími næsta sunnudag.

Messað verður í Þingvallakirkju nk. sunnudag 18.júlí kl. 11 en ekki kl. 14 eins og venja er. Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson og organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Ástæðan fyrir breyttum messutíma í Þingvallakirkju er að um þessa helgi er haldin Skálholtshátíð og messað er í Skálholtsdómkirkju kl. 14.

Kristján Valur Ingólfsson, 17/7 2004

Fiskidráttur eða köllun

Messað var í fögru veðri á Þingvöllum á 5.sd.eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið geymir þessi orð Jesú: Legg þú út á djúpið! og söfnuðurinn söng af krafti sálm Matthíasar Jochumsonar um þann texta, þó að lagið sé hreint ekki auðvelt til safnaðarsöngs. Hér má lesa predikun dagsins: Fiskidráttur eða köllun.

Lesa predikunina..

Kristján Valur Ingólfsson, 12/7 2004

Kvöldbænir í Þingvallakirkju 8.júlí

Að lokinni göngu fimmtudagskvöldið 8.júlí verða kvöldbænir í kirkjunni kl. 22.

Lesa áfram …

Kristján Valur Ingólfsson, 7/7 2004

Messa sunnudaginn 4.júlí

Messað verður í Þingvallakirkju sunnudaginn 4.júlí kl. 14.00 Prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson og organisti Guðmundur Vilhjálmsson.

Kristján Valur Ingólfsson, 3/7 2004

Messað er í Þingvallakirkju hvern helgan dag frá hvítasunnu til höfuðdags.
Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins
(sími 482 2660)
sér um að bóka giftingar og skírnir og aðrar kirkjuathafnir í Þingvallakirkju.
Sími sóknarprests er
897 2221.

Messutilkynningar eru hér á vefnum, í Morgunblaðinu og héraðsfréttablöðum.





Sjá einnig síðu http://www.thingvellir.is/

 

Sími 897 2221 · Kerfi RSS