Á öðrum sunnudegi eftir þrenningarhátíð prédikaði Kristín Þórunn Tómasdóttir í Þingvallakirkju. Prédikunin hefur yfirskriftina Ferðapunktar og fíkjuviðarblöð og hana er hægt að lesa hér á vefnum..
Lesa prédikunina …
arni.svanur.danielsson, 21/6 2004
Messað verður í Þingvallakirkju þriðja sunnudag eftir þrenningarhátíð, 27. júní, nk. kl. 14.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 21/6 2004
Á þjóðhátíðardegi prédikaði Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, í Þingvallakirkju. Prédikun hans, sem ber yfirskriftina, Lýðveldið og guðleg forsjón, er hægt að lesa hér á vefnum.
Lesa prédikunina …
arni.svanur.danielsson, 17/6 2004
Messað verður í Þingvallakirkju annan sunnudag eftir þrenningarhátíð, 20. júní, nk. kl. 14.00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 17/6 2004
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju á 60 ára afmæli lýðveldisins. Dóms- og kirkjumálaráðherra, Björn Bjarnason, prédikar og Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Að kvöldi dagsins kl. 20 verður kvöldganga undir heitinu fimmtudagskvöld á Þingvöllum.
Kristján Valur Ingólfsson, 15/6 2004
Á fyrsta sunnudegi eftir þrenningarhátíð lagði Árni Svanur Daníelsson út af guðspjallinu um ríka manninn og Lasarus í prédikun sem ber yfirskriftina Brúarsmíði og almannagjár.
Lesa prédikunina …
Kristján Valur Ingólfsson, 15/6 2004
Messað verður í Þingvallakirkju fyrsta sunnudag eftir þrenningarhátíð, 13.júní, nk. kl. 14.00. Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur, predikar, sr. Arna Grétarsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 8/6 2004
Fimmtudagskvöldið 10.júni er kvöldganga á Þingvöllum undir heitinu: Þingvallaljóð. Arnar Jónsson, leikari flytur ljóð og texta eftir ýmsa höfunda. Gangan hefst kl. 20. Þegar henni lýkur, um kl. 22. verða kvöldbænir í Þingvallakirkju sem sr. Halldór Reynisson annast.
Kristján Valur Ingólfsson, 7/6 2004
Hið nýja líf Guðs er fullkomlega nýtt líf. Það er ekki viðgerð á því gamla, ekki heldur siðferðileg breyting til batnaðar, eins og að hætta drekka, eða læra að fara eftir umferðareglum, - nei, það er alveg nýtt líf og ný lífgjöf, hins eilífa lífs.
Sjá nánar
Lesa áfram …
Kristján Valur Ingólfsson, 6/6 2004
Messað verður í Þingvallakirkju kl. 14 á þrenningarhátíð og sjómannadegi, þann 6. júní næstkomandi. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson og organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 1/6 2004