Messað verður í Þingvallakirkju um bænadaga og páska eins og hér segir. Skírdagur 21.apríl. Fermingarmessa kl. 14. Fermdur verður Jón Alexander Jónsson, Breiðuvík 75, Reykjavík. Föstudagurinn langi. 22.apríl. Guðsþjónusta kl. 14. Að lokinni guðsþjónustunni er bænaganga eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Páskadagur 24.apríl. Messa við sólarupprás, laust fyrir kl. sex að morgni. Morgunverður með einföldu sniði að lokinni messu. Þátttakendur taka með sér nesti og deila með öðrum. Sama dag kl. 14 er hátíðarmessa með kórsöng og einsöng og hátíðartóni Bjarna Þorsteinssonar. Organisti Þingvallakirkju er Guðmundur Vilhjálmsson. Prestur í öllum messunum er Kristján Valur Ingólfsson. Við hátíðarmessuna á páskadag syngur söngflokkur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur sem einnig syngur einsöng.
Kristján Valur Ingólfsson, 16/4 2011
Þingvallakirkja hefur fengið styrk úr Húsafriðunarsjóði til áætlanagerðar og undirbúnings framkvæmda. Þessi styrkur er mjög dýrmætur vegna þess að nú er framlag Jöfnunarsjóðs þjóðkirkjunnar til framkvæmda inni og úti að fullu uppurið, en enn er margt eftir að gera. Magnús Skúlason hefur annast eftirlit með framkvæmdum til þessa fyrir hönd Húsafriðunarnefndar og mun fylgja því eftir sem óunnið er.
Þingvallanefnd og þjóðgarðsvörður hafa sýnt verkinu mikinn áhuga og tekið myndarlega þátt í kostnaði. Enn fremur hefur fengist viðbótarstyrkur úr Kirkjugarðasjóði svo ljúka megi upphleðslu kirkjugarðsveggjanna.
Kristján Valur Ingólfsson, 23/3 2011
Jóladagur, 25.desember. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sönghópur syngur Hátíðasöngva Bjarna Þorsteinssonar undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Nýársdagur. 1.janúar. Hátíðarmessa kl. 14. Systkinin Dagur Adam og Mirra Katrín Ólafsbörn leika á hljóðfæri. Margrét Bóasdóttir syngur einsöng. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 15/12 2010
Miðvikudaginn 8.desember er guðsþjónusta í Þingvallakirkju kl. 14. Hópur úr eldriborgarastarfi Háteigskirkju kemur til kirkju með Þórdísi Ásgeirsdóttur sem er umsjónamaður starfsins. Að lokinni guðsþjónustu verður drukkið kaffi í Þjónustumiðstöðinni.
Kristján Valur Ingólfsson, 7/12 2010
Messað var í Þingvallakirkju sunnudaginn 17.október. Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir lék á fiðlu í forspili og eftirspili ásamt föður sínum Guðmundi Vilhjálmssyni organista kirkjunnar. Úr hópi meðhjálpara sumarsins aðstoðuðu Sigrún V. Ásgeirsdóttir og Dóra Diego við lestur ritningartexta en Kristján Þorgeirsson hringdi klukkum og skrýddi prestinn. Þáttargerðarfólk frá ríkissjónvarpinu sem fjalla vildi um altaristöflu Ófeigs frá Heiðarbæ tók myndir í messunni. Eftir messu var kirkjukaffi á skrifstofu þjóðgarðsvarðar í Þingvallabænum.
Kristján Valur Ingólfsson, 5/11 2010
Næstkomandi sunnudag 5. september er messa kl. 14. Þetta er síðasta sunnudagsmessa sumarsins. Í upphafi messunnar verður jarðsett í Þingvallakirkjugarði duftker Höllu Einarsdóttur frá Kárastöðum. Einar Jóhannesson leikur á klarinett, Guðmundur Vilhjálmsson á orgel. Prestur er Kristján Valur Ingólfsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 30/8 2010
Sunnudagurinn 29. ágúst er Höfuðdagur. Þá er minnst þess atburðar er Jóhannes skírari missti höfuðið fyrir að segja sannleikann. Messa er kl. 14 í Þingvallakirkju. Ingibjörg Ásta Guðmundsdóttir leikur á fiðlu með föður sínum organistanum Guðmundi Vilhjálmssyni. Lestra og meðhjálparaþjónustu annast Sigrún V Ásgeirsdóttir, Margrét Eggertsdóttir og Dóra Diego. Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari.
Klukkan 15.30 er skírnarguðsþjónusta. Skírð verða tvö börn.
Kristján Valur Ingólfsson, 25/8 2010
Sunnudaginn 22.ágúst er messa kl. 14. sr. Gunnþór Ingason predikar, Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Meðhjálparar Ása Guðjónsdóttir og Sigurður Bjarnason.
Kristján Valur Ingólfsson, 16/8 2010
Sunnudaginn 15. ágúst er messa kl. 14. sr. Halldór Reynisson verkefnastjóri fræðsludeildar á Biskupsstofu predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Meðhjálparar Birna Gunnarsdóttir og Þorsteinn Guðlaugsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 9/8 2010
Sunnudaginn 8. ágúst er messa kl. 14. Í messunni verður minnst séra Braga Friðrikssonar fyrrum prófasts Kjalarnesprófasdæmis, sem andaðist í maí. sl. Séra Bragi hafði fallist á að predika á Þingvöllum þennan sunnudag í ágúst þegar áætlun um sumarmessurnar varð gerð í upphafi árs. Hann hafði reyndar látið vita strax í mars að af því myndi ekki geta orðið. Staðarprestur mun því predika og þjóna fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson, Benedikt Kristjánsson syngur einsöng. Meðhjálparar eru Birna Hjaltadóttir og Grétar Einarsson.
Kristján Valur Ingólfsson, 7/8 2010